Opið Starfsmenn rakarastofunnar Barbarans hlakka til að mæta til vinnu, eftir margra vikna lokun í samkomubanni.
Opið Starfsmenn rakarastofunnar Barbarans hlakka til að mæta til vinnu, eftir margra vikna lokun í samkomubanni. — Ljósmynd/Barbarinn
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Fyrstu tilslakanir samkomubannsins taka gildi í dag en með þeim er lagt bann við fjöldasamkomum þar sem fleiri en 50 manns koma saman, í stað 20. Gildir bannið frá deginum í dag og fram til 1.

Veronika S. Magnúsdóttir

veronika@mbl.is

Fyrstu tilslakanir samkomubannsins taka gildi í dag en með þeim er lagt bann við fjöldasamkomum þar sem fleiri en 50 manns koma saman, í stað 20. Gildir bannið frá deginum í dag og fram til 1. júní, eða þar til stjórnvöld endurmeta aðstæður, að því er fram kemur í auglýsingu heilbrigðisráðherra.

Söfnum, kvikmyndahúsum, hársnyrtistofum, nuddstofum og fleiri vinnustöðum er heimilt að hefja starfsemi í dag samkvæmt auglýsingunni, en þó verður ávallt að gæta þess að fleiri en 50 manns komi ekki saman í einu rými auk þess sem regla um tveggja metra nálægðartakmörk verður áfram í gildi.

Uppgötvi auðinn í söfnunum

Þjóðarbókhlaðan verður opnuð í dag eftir sjö vikna lokun. Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir landsbókavörður segir að starfsfólk bókhlöðunnar hafi búið sig undir opnunina og að sérstök aðgát verði höfð þegar bókum verður skilað til safnsins á næstu dögum, vegna smithættu.

„Við höldum okkur við 50 manna fjöldatakmörkun á hverri hæð. Fólk getur fengið lánað og skilað bókum,“ segir Ingibjörg. Kaffistofan verður þó ekki opin og leitar bókhlaðan nú að rekstraraðila fyrir starfsemina.

Aðgangur að Þjóðminjasafninu verður ókeypis næstu vikur að sögn Margrétar Hallgrímsdóttur þjóðminjavarðar, en tilslakanir á samkomubanni gera það að verkum að safnið getur hafið starfsemi að nýju í dag. Erlendir ferðamenn hafa verið stór hluti gesta á söfnum landsins að undanförnu, en fækkað hefur verulega í þeirra hópi.

„Ég hef væntingar til þess að Íslendingar fari sjálfir að uppgötva þann auð sem er fólginn í söfnunum. Þetta er almennur vettvangur sem við eigum saman og það er svo fjölbreytt starfsemi á söfnum á höfuðborgarsvæðinu.“

Sömu myndir í sýningu og áður

Kvikmyndahús verða opnuð í dag og verður starfsemin með óhefðbundnum hætti. Í Laugarásbíói er þess gætt að einungis einn salur sé í notkun á hverjum sýningartíma, að sögn Magnúsar Geirs Gunnarssonar, framkvæmdastjóra bíósins.

Sömu myndir eru í sýningu og fyrir 22. mars, þegar kvikmyndahús skelltu í lás. Meðal þeirra er íslenska grínmyndin Síðasta veiðiferðin, sem hefur þegar fengið góðar viðtökur.

„Þetta er stórmynd og við lokuðum bara fyrir fullu húsi. Þessi mynd á mikið inni,“ segir Magnús og bætir við að 15. maí verði næsta frumsýning og þaðan í frá vikulega.

„Við nýttum tímann á meðan það var lokað og skiptum út hreinlætistækjum og flísalögðum allt.“

Rakarastofa opin í tólf tíma

Hárgreiðslustofum er eins og áður sagði heimilt að hefja starfsemi í dag og að minnsta kosti ein rakarastofa hefur gripið til þess ráðs að hafa opið tólf tíma á dag, fyrstu fimm dagana.

„Við hlökkum mikið til að fara aftur að vinna. Það eru ansi margir sem bíða og margir hafa spurst fyrir um hvenær verður opnað næst,“ segir Fjóla Valdís Árnadóttir, rekstrarsjóri Barbarans.

Útibú bankanna verða einnig opnuð fljótlega en Edda Hermannsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, segir bankann hafa hvatt viðkiptavini sína til að nýta sér stafrænar leiðir. „Útibú verða opnuð hinn 11. maí og verður opið frá ellefu til fjögur á daginn,“ segir Edda í samtali við Morgunblaðið.

Skemmtanir og kennsla enn óheimil

Tekið er fram í auglýsingu heilbrigðisráðherra að bann við fjöldasamkomum nái meðal annars til ráðstefna, kennslu, skemmtana, kirkjuathafna og annarra sambærilegra atburða þar sem fleiri en 50 einstaklingar komi saman.

Skemmtistaðir, krár og spilasalir skulu einnig vera lokuð vegna sérstakrar smithættu. Öðrum veitingastöðum, þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, er enn fremur ekki heimilt að hafa opið lengur en til klukkan 23.00 alla daga vikunnar.

Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar skulu einnig standa lokaðar almenningi áfram, vegna sérstakrar smithættu, en sundlaugar mega þó hafa opið fyrir skólasund og skipulagt íþróttastarf sem samræmist settum reglum.

Matvöruverslanir og apótek eru enn undanskilin þessum fjöldatakmörkunum. Slíkum verslunum er heimilt að hafa allt að 100 manns inni í einu að því gefnu að uppfyllt séu skilyrði um nálægðartakmörk.

Sem fyrr eru æfingar og keppni skipulagðs íþróttastarfs heimilar án áhorfenda og eru snertingar óheimilar. Tveggja metra fjarlægðartakmörk gilda í skipulögðu íþróttastarfi innandyra og mega ekki fleiri en fjórir einstaklingar æfa eða leika saman í einu rými, sem skal að lágmarki vera 800 fermetrar.

Við skipulagt íþróttastarf utandyra mega ekki fleiri en sjö einstaklingar æfa eða leika saman í hópi.

Fleiri bálfarir en áður

Færst hefur í vöxt á undanförnum vikum að bálfarir fari fram án þess að duftkerin séu svo grafin. Eru kerin þá geymd þar til síðar, þegar fjölmennari athafnir geta farið fram.

Fyrstu fjóra mánuði ársins voru 15,8% fleiri líkbrennslur en á sama tímabili í fyrra, að sögn Þórsteins Ragnarssonar, forstjóra Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Voru þær 388 nú en 335 í fyrra.

Segir Þórsteinn það skýrast af breyttum aðstæðum í samfélaginu sem stafi af samkomubanni yfirvalda.

„Það hefur verið aukning undanfarin ár, en 15,8% er ívið meira en hefur verið. Ég geri ráð fyrir því að það dragi aðeins úr þessu þegar á líður eða þegar samkomubannið verður víkkað út.“