Mannmergð Einhverjar ráðstafanir þarf að gera í Herjólfsdal.
Mannmergð Einhverjar ráðstafanir þarf að gera í Herjólfsdal. — Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Áfram er unnið að undirbúningi Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina og miðasala stendur yfir.

Áfram er unnið að undirbúningi Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina og miðasala stendur yfir. Hörður Orri Grettisson, formaður þjóðhátíðarnefndar ÍBV, segir að beðið sé eftir að mál skýrist um hvaða fjöldatakmarkanir verði í gildi þegar að hátíðinni kemur um mánaðamótin júlí og ágúst og aðrar reglur stjórnvalda.

Sóttvarnalæknir gaf það út í fyrradag að tveggja metra nándarreglan yrði ekki algild eftir því sem leyfðar yrðu stærri samkomur. Samkomuhaldarar yrðu þó að gæta þess að þeir sem þyrftu eða vildu vegna undirliggjandi sjúkdóma eða af öðrum ástæðum ættu að geta notið tveggja metra svigrúms.

Sóttvarnalæknir hefur gefið út að rétt væri fyrir skipuleggjendur viðburða í sumar að miða við að hámarksfjöldi gesta fari ekki yfir 2.000 manns. Margfalt fleiri sækja venjulega Þjóðhátíð í Eyjum. Til umræðu hefur verið að skipta Herjólfsdal upp í sóttvarnasvæði og ýmsar aðrar hugmyndir komið upp. „Við bíðum eftir því hvað yfirvöld segja, hvernig reglurnar verða, og munum taka ákvarðanir út frá því,“ segir Hörður.

Krakkamótin verða haldin

ÍBV stendur fyrir tveimur fjölmennum knattspyrnumótum fyrir börn í júní og hefur gert á hverju ári í mörg ár. TM-mótið fyrir stelpur verður 11.-13. júní og Orkumótið fyrir stráka 24.-27. júní. Mótin verða haldin.

Hörður segir að allt skipulagið miðist við að fylgja reglum yfirvalda um sóttvarnir. ÍBV hefur gefið út aðgerðaáætlun fyrir bæði mótin. Þar er bent á að fjöldatakmarkanir gilda ekki um börn í íþróttum, aðeins fullorðna, og því verði að takmarka aðgengi fullorðinna í gistingu, mat og jafnvel á viðburði sem fara fram inni í íþróttahúsi. Þá verða áhorfendasvæði á knattspyrnuvöllunum hólfuð niður. helgi@mbl.is