Forstofan er það fyrsta sem fólk sér þegar það kemur inn á heimilið.
Forstofan er það fyrsta sem fólk sér þegar það kemur inn á heimilið.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Rakel Hafberg arkitekt hjá Berg hönnun segir að pastellitir séu mjög vinsælir um þessar mundir því þeir færa sumarið inn á heimili landsmanna. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is

Forstofan skiptir máli

„Forstofan hefur fengið aukna athygli og er áhersla lögð á notagildi hennar og þægindi. Forstofurýmið er það fyrsta sem tekur á móti fólki þegar það kemur heim til sín og því mikilvægt að hafa það fallegt. Speglar, snagar og bekkir njóta sín vel í forstofum sem og vel valdir litir. Fallegar viðarhillur eru vinsælar í dag, þær skapa hlýju og meiri dýpt inni í rýminu.

Flísar með marmaraáferð

Flísar með marmaraáferð á veggi og gólf eru enn ráðandi í eldhúsinu og baðherberginu. Baðvaskar eru sérsniðnir í sama stein og borðplatan, sem myndar fallega heild. Fólk er að verða djarfara í litavali á baðherbergin en það getur verið skemmtileg lausn að nota Terrazzo-flísar á gólf og upp hluta af veggjum. Það eru til svo ótalmargir flottir litatónar í þessum flísum og æðislega fallegt að mála vegginn í fallegum lit sem tónar við flísarnar. Terrazzo sést einnig í meira mæli sem borðplötur í eldhúsum landsmanna.

Friðsæl svefnherbergi

Svefnherbergið er jafnan hugsað sem griðastaður. Þar sem hraðinn í þjóðfélaginu er mikill er mikilvægt að huga vel að þessu rými og leggja áherslu á að gera það notalegt og friðsælt.

Í dag er vinsælt að hafa veggi í svefnherbergjunum í frekar djúpum og róandi jarðlitum og velja sama lit á loftið. Vegglistar eru gjarnan notaðir til að skapa dýpt og ramma jafnvel rúmið inn. Vinsælt er að láta gardínur ná upp í loft og niður í gólf. Margir horfa til fegurðar á huggulegum hótelherbergjum og nýta sér hugmyndir þaðan til að skapa rétta andrúmsloftið.

Grænt og vænt

Plöntur halda áfram að vera vinsælar enda er hugsunin um náttúruna ofarlega í huga landsmanna. Huga þarf að plöntum en í staðinn auka þær loftgæði heimilisins og gleðja augað. Þeir sem eru ekki með græna fingur geta keypt sér þurrkuð blóm eða gerviplöntur til að ná fram þessu umhverfi náttúrunnar heima. Úrvalið af þurrkuðum stráum hefur aldrei verið meira og er einstaklega vinsælt að skipta út litatónum eftir árstíðum. Þá eru bjartari vendir eða strá höfð yfir sumarmánuðina og haustlitirnir dregnir fram þegar daginn tekur að stytta.

Litir og áferð

Djúpir jarðtónar halda áfram að vera vinsælir á þessu ári. Þeir litir eru sérstkaklega notalegir á haustin þegar fólk fer að kveikja á kertum og vefja sig inn í teppi og lesa góða bók. Ég mæli með að skoða

spartlmálninguna KC-14 sem gerir svo skemmtilega áferð og dýpt á veggina. Pasteltónar koma einnig sterkir inn á þessu ári, enda hleypa þeir sumrinu inn á heimilið. Pastellitir eru að ná inn í eldhúsin, baðherbergin sem og barna- og unglingaherbergin.

Fólk ætti ekki að hræðast það að mála í litum, enda alltaf hægt að mála bara yfir í nýjum tónum.“