Paderborn Samúel Kári Friðjónsson fer beint í mikinn fallslag.
Paderborn Samúel Kári Friðjónsson fer beint í mikinn fallslag. — AFP
Þýska knattspyrnusambandið staðfesti í gær að keppni í tveimur efstu deildum karla hæfist á ný laugardaginn 16. maí en níu umferðum er ólokið af deildinni.
Þýska knattspyrnusambandið staðfesti í gær að keppni í tveimur efstu deildum karla hæfist á ný laugardaginn 16. maí en níu umferðum er ólokið af deildinni. Íslendingarnir fjórir í þessum tveimur deildum spila allir á fyrsta degi og Samúel Kári Friðjónsson á þar fyrir höndum lykilleik í fallbaráttunni gegn Fortuna Düsseldorf á útivelli. Lið hans er neðst en Düsseldorf þriðja neðst. Alfreð Finnbogason og félagar í Augsburg, sem eru í 14. sæti af 18 liðum, eiga heimaleik gegn Wolfsburg sama dag.