Selfoss Halldór Jóhann Sigfússon stýrði Fram seinni hluta tímabilsins en hefur nú störf á Selfossi sem þjálfari og framkvæmdastjóri akademíunnar.
Selfoss Halldór Jóhann Sigfússon stýrði Fram seinni hluta tímabilsins en hefur nú störf á Selfossi sem þjálfari og framkvæmdastjóri akademíunnar. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Handbolti Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Halldór Jóhann Sigfússon gerði á dögunum þriggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss og mun hann þjálfa karlalið félagsins. Þá verður hann einnig framkvæmdastjóri handknattleiksakademíunnar sem deildin rekur ásamt Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Handbolti

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Halldór Jóhann Sigfússon gerði á dögunum þriggja ára samning við handknattleiksdeild Selfoss og mun hann þjálfa karlalið félagsins. Þá verður hann einnig framkvæmdastjóri handknattleiksakademíunnar sem deildin rekur ásamt Fjölbrautaskóla Suðurlands.

Halldór var kynntur hjá Selfossi í febrúar, þrátt fyrir að hafa tekið við Fram í nóvember og verið með liðið í hörðum slag um sæti í úrslitakeppninni á Íslandsmótinu, áður en það var síðan blásið af vegna kórónuveirunnar.

„Selfyssingarnir höfðu samband við mig snemma í janúar og óskuðu eftir því að fara í viðræður við mig. Á þeim tíma var ég ekki tilbúinn að fara í alvöruviðræður því ég vildi skoða hverjir möguleikarnir mínir væru úti,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Morgunblaðið.

Fór til finnsku meistaranna

Skoðaði hann m.a. aðstæður í Finnlandi hjá meistaraliði Riihimäen Cocks, en ákvað að lokum að vera áfram á Íslandi og taka við Selfossi.

„Ég var með ákveðna hluti þar sem ég vildi fylgja eftir og sjá hvort yrði eitthvað úr. Ég fór út með konunni minni að skoða aðstæður hjá Cocks og svo voru tvö önnur dæmi í gangi en svo sá maður að það var ekki nógu spennandi og vildi ég klára mín mál snemma.“

Halldór er reynslumikill á hliðarlínunni og hefur þjálfað karla- og kvennalið Fram og karlalið FH hér á landi, ásamt því að vera aðstoðarmaður Arnars Péturssonar hjá kvennalandsliði Íslands. Þá tók hann við U21 árs landsliði Barein í janúar á síðasta ári en var rekinn átta mánuðum síðar. Gerði hann kvennalið Fram að Íslandsmeistara árið 2013 og karlalið FH að bikarmeistara á síðasta ári. Hann er spenntur fyrir verkefninu á Selfossi.

„Mér finnst virkilega spennandi að taka við Selfossliðinu. Það eru ákveðnir möguleikar þar þótt Haukur Þrastarson sé að fara og liðið hefur misst gríðarlega sterka leikmenn á síðustu árum. Möguleikarnir til að bæta í og byrja nýjan kafla eru til staðar. Það heillaði mig sömuleiðis að geta starfað í kringum akademíuna og verið í fullu starfi sem þjálfari í kringum þetta.“

Annað félag í Finnlandi

Halldór var opinn fyrir því að þjálfa erlendis, en bætir við að það hefði þurft afar spennandi tilboð til að lokka hann út fyrir landsteinana. Þá vildi Fram halda þjálfaranum, en að lokum varð Selfoss fyrir valinu.

„Viðræður við erlendu félögin fóru ekki langt. Það spurðist út með Cocks því við fórum út. Ég var síðan í sambandi við annað félag í annarri deild, en það voru nokkrir hlutir sem spiluðu inn í. Ég hefði alltaf farið einn út, eins og ég gerði hjá Barein. Konan mín er í góðri vinnu og við erum með börn á þannig aldri að það er ekki auðvelt að rífa þau upp úr sínu. Elsta dóttirin er 21 árs og sú yngsta er 9 ára, svo það er breitt aldursbil. Við hefðum því aldrei farið út með alla fjölskylduna. Þetta hefði því þurft að vera mjög gott tilboð bæði fjárhagslega og svo spennandi áskorun líka.

Þegar ég skoðaði möguleikana var mest spennandi að taka við Selfossliðinu. Það voru önnur félög á Íslandi sem höfðu samband við mig og Framararnir reyndu mikið að halda mér en mér fannst verkefnið á Selfossi mjög spennandi og sú uppbygging sem hefur verið þar í gangi.“

Stjórnar akademíunni

Eins og áður hefur komið fram mun Halldór þjálfa meistaraflokk karla, sem og vera framkvæmdastjóri akademíu félagsins og Fjölbrautaskóla Suðurlands, en hann segist ekki þurfa að verja öllum stundum í íþróttahúsinu á Selfossi. „Langt frá því. Mitt hlutverk númer 1, 2 og 3 er að vera þjálfari meistaraflokksins. Svo verð ég líka framkvæmdastjóri í handboltaakademíunni sem er í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Það eru ákveðnir klukkutímar á viku sem fara í það. Ég verð þar með góðu fólki sem aðstoðar mig og það er spennandi verkefni og tekur ekki mikið frá mér.“

Mikið högg að missa Hauk

Selfoss er ríkjandi Íslandsmeistari, þar sem liðið vann Hauka í úrslitum Íslandsmótsins tímabilið 2018/19. Ekki tókst að krýna meistara á þessu tímabili og veður liðið því áfram ríkjandi meistari næsta árið. Halldór segir möguleika til staðar fyrir Selfoss að verja titilinn, en til að það geti orðið að veruleika þurfi að bæta ákveðna hluti.

„Ég er þannig gerður að ég geri ákveðnar kröfur á mig og mitt lið. Það eru möguleikar til staðar þarna. Við missum auðvitað Hauk Þrastarson til Kielce í sumar, sem er gríðarlega mikið högg fyrir liðið og þá er liðið búið að missa sterka leikmenn á síðustu 2-3 árum. Við erum hins vegar komnir með Guðmund Hólmar sem við höfum miklar væntingar til og síðan erum við að skoða markmannsmálin hjá okkur. Við höldum öllum öðrum leikmönnum á samningi. Mér finnst eðlilegt að við setjum pressu á okkur sjálfa og ætlum okkur að spila við toppinn og ég tel liðið nógu gott til að berjast um allt. Á næstu leiktíð verður deildin samt sem áður gríðarlega góð og hefur sjaldan verið jafnsterk. Það eru leikmenn að koma heim og sömuleiðis sterkir þjálfarar sem gera þetta enn skemmtilegra og áhugaverðara, bæði fyrir hinn almenna áhorfanda og svo leikmenn og þá sem starfa í kringum deildina,“ sagði Halldór, sem hefur litlar áhyggjur af sóknarleik liðsins. Vörnin og markvarsla hefur hins vegar verið höfuðverkur hjá liðinu.

„Selfossliðið var með lélegustu vörnina og hlutfallslega lélegustu markvörsluna á síðustu leiktíð. Það eru hlutir sem við þurfum að laga í samvinnu. Ég er sannfærður um að liðið geti skorað mörk en við þurfum að geta varist betur til að geta átt möguleika á að keppa um einhverja titla.“

Stór yfirlýsing að semja við Guðmund

Selfoss fékk gríðarlegan liðsstyrk í síðasta mánuði er Guðmundur Hólmar Helgason sneri heim úr atvinnumennsku í Austurríki og samdi við félagið. Guðmundur lék með íslenska landsliðinu á lokamóti EM í Póllandi 2016 og HM í Frakklandi ári síðar. Eins og gefur að skilja var Halldór ánægður með þann liðsauka.

„Það var stór yfirlýsing fyrir Selfoss og mikil viðurkenning fyrir handboltann á Selfossi að svo öflugur leikmaður hafi valið okkur þegar hann hafði úr fjölmörgum tilboðum að velja. Hann verður í gríðarlega stóru hlutverki hjá okkur og ég sé hann sem foringja í vörninni ásamt Einari Sverrissyni og hinum unga Tryggva Þórissyni. Það verður mikið þroskaferli fyrir Tryggva að fá eins sterkan leikmann við hliðina á sér. Að fá Guðmund sýnir að við ætlum okkur að styrkja varnarleikinn gríðarlega og vinna vel í honum í framhaldinu. Eins og ég kom inn á áðan ætlum við okkur líka að fá annan markvörð en það er erfiður markaður á Íslandi, svo við erum að skoða alla möguleika, en við höfum ekki fundið lausn á því enn þá.“

Oft ekkert að gera

Halldór Jóhann viðurkennir að það sé ekki auðvelt að vera þjálfari í því ástandi sem ríkt hefur undanfarnar vikur, enda hafa lið í meistaraflokki ekki mátt æfa saman og ekkert hefur verið keppt.

„Hjá Fram reyndu menn að æfa eins og þeir gátu. Við sendum þeim prógramm en það voru fjölmargir leikmenn sem gátu ekki æft þar sem þeir voru ekki með græjur til að lyfta t.d. Við reyndum að halda hlaupunum við og láta leikmenn vinna með eigin líkamsþyngd. Þegar það kom í ljós að ekki yrði meira spilað tókum við pásu fram í maí og erum að byrja aftur núna. Svo er farið að slaka á samkomubanni og þá getum við unnið meira saman sem hópur. Þetta hefur ekki verið auðvelt og það hafa komið margir dagar þar sem maður hefur ekki haft neitt að gera,“ sagði Halldór Jóhann.