Papa Reese. S-AV
Norður | |
♠Á5 | |
♥K642 | |
♦G84 | |
♣ÁG53 |
Vestur | Austur |
♠D762 | ♠3 |
♥73 | ♥D5 |
♦ÁD75 | ♦K109632 |
♣872 | ♣K1094 |
Suður | |
♠KG10984 | |
♥ÁG1098 | |
♦-- | |
♣D6 |
Suður spilar 6♥.
Sagnir eru eðlilegar og blátt áfram: Suður opnar á 1♠, norður segir 2♣, suður 2♥, norður 4♥ og suður 6♥. Hvernig á að spila með ♣8 út?
Við borðið sjást aðeins tvær hendur og þá skiptir höfuðmáli hvers konar spilari situr í vestur. Er það hraðlyginn skipakóngur (Þemistókles Papadóplóus) eða reglufastur rostungur (Walter the Walrus)?
Nei, spilið er ekki ættað úr dýragarðsbókum Mollos – það er komið frá Reese, sem virðist gera ráð fyrir að vestur sé rostungur og spili út „normal top of nothing“. Reese vill drepa á ♣Á og láta drottninguna detta heima. Taka svo ♥Á og svína ♥G yfir til austurs. Jafnvel þótt svíningin misheppnist er ekki auðvelt fyrir austur að leggja niður ♣K, segir hann.
Kannski er þetta rétt metið hjá Reese. En eitt er víst: Með hann í vestur væri rétt að hleypa á ♣D í fyrsta slag. Reese var hálfgerður Papa.