Farinn Ragnar Nathanaelsson leikur ekki áfram með Valsmönnum.
Farinn Ragnar Nathanaelsson leikur ekki áfram með Valsmönnum. — Morgunblaðið/Hari
Austin Magnús Bracey og Ragnar Nathanaelsson hafa yfirgefið körfuknattleikslið Vals en félagið skýrði frá þessu í gær. Ragnar gekk til liðs við félagið frá Njarðvík árið 2018 og hefur leikið með Valsmönnum undanfarin tvö tímabil.
Austin Magnús Bracey og Ragnar Nathanaelsson hafa yfirgefið körfuknattleikslið Vals en félagið skýrði frá þessu í gær. Ragnar gekk til liðs við félagið frá Njarðvík árið 2018 og hefur leikið með Valsmönnum undanfarin tvö tímabil. Ragnar, sem er hávaxnasti leikmaður landsins, hefur einnig leikið með Þór í Þorlákshöfn og Hamri ásamt því að spila í Svíþjóð og á Spáni. Austin Magnús lék fyrst með Val árið 2012 en söðlaði þá um og lék með Hetti og Snæfelli áður en hann sneri aftur á Hlíðarenda árið 2016.