Þorlákshöfn Lárus Jónsson þjálfar lið Þórsara á næsta tímabili.
Þorlákshöfn Lárus Jónsson þjálfar lið Þórsara á næsta tímabili. — Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur samið við bandarískan leikstjórnanda, Jahii Carson, um að leika með liðinu í úrvalsdeildinni. Þetta kom fram í Hafnarfréttum í gær. Carson er 26 ára og lék með Arizona State háskóla til 2014.
Körfuknattleiksdeild Þórs í Þorlákshöfn hefur samið við bandarískan leikstjórnanda, Jahii Carson, um að leika með liðinu í úrvalsdeildinni. Þetta kom fram í Hafnarfréttum í gær. Carson er 26 ára og lék með Arizona State háskóla til 2014. Hann hefur síðan komið víða við og leikið með Wollongong Hawks í Ástralíu, Metalac Valjevo í Serbíu, Adanaspor í Tyrklandi, Island Storm í Kanada, Koroivos í Grikklandi, Moncton Magic í Kanada og síðustu tvö árin með BCM Piesti í Rúmeníu.