Teljandi vera. V-Enginn
Norður | |
♠G973 | |
♥K85 | |
♦92 | |
♣K963 |
Vestur | Austur |
♠K4 | ♠65 |
♥ÁDG932 | ♥76 |
♦106 | ♦ÁDG874 |
♣D102 | ♣G74 |
Suður | |
♠ÁD1082 | |
♥104 | |
♦K63 | |
♣Á85 |
Suður spilar 4♠.
Vonandi er vestur að fylgjast með og telja, segir Terence Reese þegar hann leggur á ráðin í 4♠. Það skiptir máli, því ekki gengur að kasta perlum fyrir svín.
Vestur vakti á 1♥, austur svaraði með 2♦, suður kom inn á 2♠ og norður sagði 4♠. Tígultían út, drepið á ás, hjarta til baka upp á ás og meira hjarta. Þægileg byrjun, en langt í land.
Spaðasvíning kemur ekki til greina, því vestur á örugglega ♠K. En hvað með að strípa vestur af útgönguspilum og kasta honum svo inn með ♠Á og spaða? Vonlaust, segir Reese. Vestur á greinilega 6 hjörtu og 2 tígla og getur því ekki átt 2-2 í svörtu litunum.
Eina vonin er sú að vestur sé „the counting type“. Sagnhafi trompar hjarta, leggur niður ♦K, spilar svo ♠Á og spaða. Hagar sér eins og maður með skiptinguna 5=2=2=4, en þá er óhætt fyrir vestur að spila hjarta í tvöfalda!