50 ára Svanhildur er Borgnesingur. Hún er leikskólakennari að mennt frá Háskólanum á Akureyri og er í meistaranámi í sérkennslufræðum við HÍ. Svanhildur er leikskólakennari á Uglukletti í Borgarnesi. Maki : Fausto Bianchi, f.
50 ára
Svanhildur er Borgnesingur. Hún er leikskólakennari að mennt frá Háskólanum á Akureyri og er í meistaranámi í sérkennslufræðum við HÍ. Svanhildur er leikskólakennari á Uglukletti í Borgarnesi.
Maki : Fausto Bianchi, f. 1962 á Ítalíu, hárgreiðslumeistari með eigin stofu í Reykjavík.
Börn : Eyþór Freyr, f. 1994, Smári Hrafn, f. 1995, Dagbjört Diljá, f. 1999, Haraldsbörn, og Þorvaldur Jónsson, f. 2007.
Foreldrar : Ólafur Örn Kristjánsson, f. 1948, búsettur í Hafnarfirði, og Sigríður Björk Þórisdóttir, f. 1951, d. 2011. Stjúpfaðir var Þorvaldur Þorvaldsson, f. 1948, d. 2009. Þau voru búsett í Borgarnesi.