Sting er einn þeirra sem ræða lyfin.
Sting er einn þeirra sem ræða lyfin. — AFP
HEIMILDARMYNDIR Á morgun, mánudag, verður heimildarmyndin Have a Good Trip: Adventures in Psychedelics frumsýnd á Netflix.
HEIMILDARMYNDIR Á morgun, mánudag, verður heimildarmyndin Have a Good Trip: Adventures in Psychedelics frumsýnd á Netflix. Eins og nafnið gefur til kynna munu sögur af inntöku ofskynjunarlyfja eiga sviðið og koma fram margir sem áhorfendur þekkja úr skemmtanabransanum vestanhafs á borð við ASAP Rocky, Sting og Söruh Silverman. Myndin mun ekki einungis skoða fyndnar sögur frægra heldur einnig leita svara við áleitnum spurningum eins og hvort ofskynjunarlyf geti nýst í baráttunni gegn þunglyndi og fíkn svo eitthvað sé nefnt.