Það er gott að búa í Kópavogi.
Það er gott að búa í Kópavogi.
Sumarstörfum í Kópavogi verður fjölgað úr 425 í 750 í sumar eða um tæplega 76% miðað við í fyrra. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti fyrr í vor aðgerðir til að bregðast við afleiðingum faraldursins og er fjölgun sumarstarfa hluti af þeim aðgerðum.

Allir sem uppfylla skilyrði um ráðningu fá starf hjá Kópavogsbæ. Verður tekið mið af fyrirhuguðum stuðningi Vinnumálastofnunar í skipulagningu sumarstarfa en stofnunin stýrir átaki stjórnvalda um tímabundna fjölgun starfa fyrir námsmenn. Sumarstarfsmenn, eldri en 18 ára, koma flestir til starfa í byrjun júní og verður þeim tryggð vinna í að minnsta kosti sex vikur.