Áslaug Magnúsdóttir, frumkvöðull og kaupsýslukona, er komin með nýtt tískumerki sem heitir KATLA. Hún er einn af stofnendum Moda Operandi, sem sérhæfir sig í netsölu á hönnun frægustu tískuhönnuða heims. Hún hefur komist á lista yfir valdamestu einstaklinga tískuheimsins í Bandaríkjunum. Á fimmtudaginn hélt hún boð fyrir fáa útvalda til að kynna fatalínuna, sem er fersk og falleg. Fötin eru búin til á umhverfisvænan hátt og er sjálfbærni í forgrunni. Fötin eru seld á vefnum www.katla.com. Marta María mm@mbl.is
Áslaug Magnúsdóttir, frumkvöðull og kaupsýslukona, er komin með nýtt tískumerki sem heitir KATLA. Hún er einn af stofnendum Moda Operandi, sem sérhæfir sig í netsölu á hönnun frægustu tískuhönnuða heims. Hún hefur komist á lista yfir valdamestu einstaklinga tískuheimsins í Bandaríkjunum. Á fimmtudaginn hélt hún boð fyrir fáa útvalda til að kynna fatalínuna, sem er fersk og falleg. Fötin eru búin til á umhverfisvænan hátt og er sjálfbærni í forgrunni. Fötin eru seld á vefnum www.katla.com.
Marta María mm@mbl.is