Í Knarrarvogi Sóðaskapurinn við grenndargámana hefur verið mörgum til ama og alls konar drasli, sem á heima hjá Sorpu, verið hent þar.
Í Knarrarvogi Sóðaskapurinn við grenndargámana hefur verið mörgum til ama og alls konar drasli, sem á heima hjá Sorpu, verið hent þar.
Ákveðið hefur verið að fjarlægja tímabundið grenndargáma á vegum Reykjavíkurborgar sem staðið hafa við Endurvinnsluna í Knarrarvogi. Í bréfi sem Endurvinnslan hefur fengið frá Sorpu, sem hefur haft umsjón með gámunum, segir m.a.

Ákveðið hefur verið að fjarlægja tímabundið grenndargáma á vegum Reykjavíkurborgar sem staðið hafa við Endurvinnsluna í Knarrarvogi. Í bréfi sem Endurvinnslan hefur fengið frá Sorpu, sem hefur haft umsjón með gámunum, segir m.a. að þarna hafi verið ,„langvarandi óþrif og misnotkun á stöðinni“.

Stöðin hefur verið mikið notuð, að sögn Helga Lárussonar, framkvæmdastjóra Endurvinnslunnar. ,,Nú er hins vegar ljóst að þeir sem nýttu gámana þarna þurfa að leita annað vegna þess að sumir hafa misnotað þessa aðstöðu,“ segir Helgi.

Fyrir þremur vikum var greint frá óþrifnaði við gámana í Morgunblaðinu, en þá lágu pappakassar, plastpokar og fleira drasl þar eins og hráviði. Grenndargámar á vegum borgarinnar eru ætlaðir fyrir pappír, plast og gler sem kemst inn um lúguna. Annað á að fara í pressugáma á stöðvum Sorpu. Helgi segir að ekkert hafi breyst síðustu vikur og enn sé hent þarna plastpokum og drasli, jafnvel heilu sófunum. aij@mbl.is