Akureyri Ragnar Snær Njálsson er kominn aftur í uppeldisfélagið, KA.
Akureyri Ragnar Snær Njálsson er kominn aftur í uppeldisfélagið, KA. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
KA-menn halda áfram að stækka hóp sinn í handboltanum, en í gær skýrðu þeir frá því að Ragnar Snær Njálsson væri kominn aftur til félagsins eftir langa fjarveru.
KA-menn halda áfram að stækka hóp sinn í handboltanum, en í gær skýrðu þeir frá því að Ragnar Snær Njálsson væri kominn aftur til félagsins eftir langa fjarveru. Ragnar lék áður með KA og HK hér heima og með Dimou Thermaikou í Grikklandi og Bad Neustadt í Þýskalandi. Hann dró sig í hlé frá handboltanum í heil sex ár en gekk til liðs við Stjörnuna snemma á síðasta ári og lék hálft annað tímabil með Garðabæjarliðinu. Ragnar er 34 ára og leikur sem skytta en er um leið öflugur varnarmaður.