Taika Waititi
Taika Waititi
Nýsjálenski kvikmyndaleikstjórinn Taika Waititi mun bæði leikstýra og skrifa handrit að kvikmynd í Stjörnustríðsbálkinum, samkvæmt tilkynningu frá Disney sem framleiðir Stjörnustríðsmyndirnar og þætti sem tengjast þeim sagnaheimi.

Nýsjálenski kvikmyndaleikstjórinn Taika Waititi mun bæði leikstýra og skrifa handrit að kvikmynd í Stjörnustríðsbálkinum, samkvæmt tilkynningu frá Disney sem framleiðir Stjörnustríðsmyndirnar og þætti sem tengjast þeim sagnaheimi. Waititi mun skrifa handritið með Krysty Wilson-Cairns, sem kom að skrifum handrits 1917 .

Waititi hefur átt velgengni að fagna í kvikmyndaheiminum hin síðustu ár og hlaut fyrr á þessu ári Óskarsverðlaun fyrir handrit sitt að Jojo Rabbit , sem hann leikstýrði einnig.

Af öðrum fyrri kvikmyndum hans má nefna ofurhetjumyndina Thor: Ragnarok sem hlaut góðar viðtökur á sínum tíma. Hann leikstýrði einnig lokaþætti syrpunnar The Mandalorian sem segir af persónu úr Stjörnustríði, hausaveiðaranum Mando Din Djarin, og ævintýrum hans.