Ballettinn Rómeó og Júlía eftir Helga Tómasson, listrænan stjórnanda San Francisco-ballettsins, verður sýndur í streymi á Facebook-síðu Lincoln Center-sviðslistamiðstöðvarinnar í New York á mánudagskvöld kl. 21.
Ballettinn Rómeó og Júlía eftir Helga Tómasson, listrænan stjórnanda San Francisco-ballettsins, verður sýndur í streymi á Facebook-síðu Lincoln Center-sviðslistamiðstöðvarinnar í New York á mánudagskvöld kl. 21.30 að íslenskum tíma og verður hann aðgengilegur öllum bæði það kvöld og einhverja næstu daga. Ballett Helga hefur hlotið mikið lof og var hann saminn við tónlist Sergei Prokofjeff. Maria Kochetkova og Davit Karapetyan dansa hlutverk Rómeós og Júlíu.