Amy Poehler sneri aftur sem Leslie Knope.
Amy Poehler sneri aftur sem Leslie Knope. — Ljósmynd/Wikipedia
VÍDEÓSAMTÖL Persónur og leikendur þáttanna Parks and Recreation endurnýjuðu kynnin í sérstökum aukaþætti á dögunum, fimm árum eftir að síðustu þáttaröð þáttanna lauk.
VÍDEÓSAMTÖL Persónur og leikendur þáttanna Parks and Recreation endurnýjuðu kynnin í sérstökum aukaþætti á dögunum, fimm árum eftir að síðustu þáttaröð þáttanna lauk. Fastur heima í sóttkví ákvað Mike Schur, höfundur þáttanna, að kalla saman handritshöfunda þeirra (með vídeósamtali) og skrifa þátt. Leikarar þáttanna hittust svo upp á kórónumátann (í gegnum tölvu) og tóku upp þáttinn sem svo var sýndur á NBC-sjónvarpsstöðinni. Markmiðið var ekki einungis að gleðja aðdáendur heldur einnig að safna peningum til styrktar góðu málefni, Feeding America, og sjá Bandaríkjamönnum fyrir mat á þessum erfiðu tímum.