Hraust Helga Guðmundsdóttir er 102 ára en fagnar 103 ára afmæli 17. maí.
Hraust Helga Guðmundsdóttir er 102 ára en fagnar 103 ára afmæli 17. maí. — Ljósmynd/Agnes Veronika
Snorri Másson snorrim@mbl.is Helga Guðmundsdóttir, 102 ára gömul kona sem læknaðist á dögunum af COVID-19 eftir að hafa smitast af veirunni á hjúkrunarheimilinu Bergi á Bolungarvík, hefur nú vakið athygli erlendis.

Snorri Másson

snorrim@mbl.is

Helga Guðmundsdóttir, 102 ára gömul kona sem læknaðist á dögunum af COVID-19 eftir að hafa smitast af veirunni á hjúkrunarheimilinu Bergi á Bolungarvík, hefur nú vakið athygli erlendis.

Viðtal við hana birtist í vefriti UNRIC (Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna) á föstudag.

Kórónuveirufaraldurinn er ekki fyrsti faraldurinn sem Helga upplifir því hún gekk einnig í gegnum spænsku veikina á sínum tíma, en frændi hennar var til að mynda í sóttkví á bæ Helgu þegar spænska veikin gekk yfir.

Tveir heimsfaraldrar eru þó ekki það eina sem Helga hefur gengið í gegnum, því þegar sonur hennar var tveggja vikna gamall smitaðist Helga af berklum og varð að fara suður á berklahæli. Hún hefur því staðið ýmislegt af sér, tvo heimsfaraldra, berkla og tvær heimsstyrjaldir.

Hélt að þetta væru endalokin

„Ég hef upplifað það allt, er það ekki?“ spyr Helga í viðtalinu.

Hún hefur búið á Bolungarvík alla tíð frá því hún giftist þar Gunnari Hirti Halldórssyni sjómanni og verslunarmanni fyrir tæpum 70 árum.

Agnes Veronika Hauksdóttir, barnabarn Helgu, kveðst hafa óttast mjög um ömmu sína þegar hún var veik af COVID-19.

„Þegar hún var komin með 38 stiga hita hugsaði ég: Þetta er búið. En hún var síðan bara rúmliggjandi í einn dag, þó að henni hafi orðið illt í maganum. Hún er svo hörð af sér að hún neyddi sig til að halda áfram að drekka,“ segir Agnes í viðtali við UNRIC.

„En hún er svo jákvæð manneskja, síhlæjandi, og ég er viss um að það hafi skipt máli við að komast í gegnum þetta.“

Agnes var sjálf sjúkraliði í bakvarðasveitinni á Bolungarvík og tók þátt í að hjúkra þeim sem höfðu veikst á Bergi.