Sumarsalat Rétturinn er í senn fljótlegur og einstaklega sumarlegur.
Sumarsalat Rétturinn er í senn fljótlegur og einstaklega sumarlegur. — Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Berglind Hreiðars á Gotteri.is galdrar hér fram einfaldan rétt sem samanstendur eingöngu af frábæru hráefni og merkilega litlu tilstandi. „Loksins fann ég dásamlega burrata-ostinn eftir flakk á milli fjölmargra verslana. Þessi er frá MS.

Berglind Hreiðars á Gotteri.is galdrar hér fram einfaldan rétt sem samanstendur eingöngu af frábæru hráefni og merkilega litlu tilstandi.

„Loksins fann ég dásamlega burrata-ostinn eftir flakk á milli fjölmargra verslana. Þessi er frá MS. Hann er til í mjög takmörkuðu upplagi enn sem komið er en hann var til í Hagkaup í Kringlunni í það minnsta. Frú Lauga er einnig oft með burrata-ost og síðan vona ég bara að þessi dásemd fari að vera til víðar því þessi ostur hentar mjög vel í ýmiss konar matargerð,“ segir Berglind um burrata-ostinn góða sem þykir afar ljúffengur.

Burrata-ostur á tómatbeði

2 x burrata-ostakúla

600 g kirsuberjatómatar

3 msk. söxuð basilíka

virgin ólífuolía

gróft salt og pipar

Aðferð:

1. Skerið tómatana niður, setjið í skál og basilíkuna saman við.

2. Setjið ólífuolíu, salt og pipar eftir smekk í blönduna.

3. Hellið á fallegan disk og setjið burrata-ostinn ofan á.

4. Dreypið smá ólífuolíu, salti og pipar yfir ostinn og njótið.

5. Einnig getur verið gott að setja smá grænt pestó eða balsamgljáa yfir í lokin.