Franski knattspyrnumaðurinn N'Golo Kanté hefur bæst í hóp þeirra leikmanna sem treysta sér ekki til að mæta aftur til æfinga með liðum sínum í ensku úrvalsdeildinni af ótta við kórónuveiruna. Leikmenn Chelsea æfðu í gær, en Kanté var hvergi sjáanlegur.
Franski knattspyrnumaðurinn N'Golo Kanté hefur bæst í hóp þeirra leikmanna sem treysta sér ekki til að mæta aftur til æfinga með liðum sínum í ensku úrvalsdeildinni af ótta við kórónuveiruna. Leikmenn Chelsea æfðu í gær, en Kanté var hvergi sjáanlegur. Kanté er af mörgum talinn einn besti miðjumaður heims og varð heimsmeistari með Frökkum á HM í Rússlandi 2018. Troy Deeney, fyrirliði Watford, neitaði einnig að æfa með liði sínu í gær. Gert er ráð fyrir því að deildin fari af stað á nýjan leik í júní.