Ekki er hjá því komist að allir kylfingar eru einhvern tíma byrjendur. Leiðbeinendur á námskeiðunum í sumar í Golfskóla GR hafa náð afar góðum tökum á íþróttinni og láta að sér kveða sem keppnisfólk.
Ekki er hjá því komist að allir kylfingar eru einhvern tíma byrjendur. Leiðbeinendur á námskeiðunum í sumar í Golfskóla GR hafa náð afar góðum tökum á íþróttinni og láta að sér kveða sem keppnisfólk. Þau voru eitt sinn byrjendur eins og aðrir en stigu fyrstu skref sín í íþróttinni á námskeiðum hjá GR. Meðfylgjandi eru myndir af leiðbeinendunum frá þeim tíma.