Snorri Páll Ólafsson í sínu náttúrulega umhverfi í Grafarholti þar sem lífið snýst um golf.
Snorri Páll Ólafsson í sínu náttúrulega umhverfi í Grafarholti þar sem lífið snýst um golf. — Morgunblaðið/Hari
Öll getum við dregið lærdóm af þeim siðum og gildum sem golfið kennir okkur, að sögn yfirþjálfarans

Snorri Páll Ólafsson, yfirþjálfari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, segir skipulegar æfingar hafa hafist að nýju hinn 4. maí eftir það hlé sem gert var vegna kórónuveirunnar.

„Skipulagt íþróttastarf lá eins og margir vita í dvala samkvæmt tilmælum heilbrigðisráðuneytisins og ÍSÍ frá því í byrjun mars þar til ástandið í samfélaginu batnaði og æfingar hófust aftur 4. maí. Á þessu tímabili brugðum við á það ráð að stofna heimaæfingasíðu með það að markmiði að stytta iðkendum okkar stundir með einföldum og skemmtilegum viðhaldsæfingum og leikjum sem auðvelt er að gera heima fyrir án þess að umturna heimilinu. Iðkendur og foreldrar nýttu þessa leið vel og voru dugleg að birta myndir eða myndbönd af sér við æfingar á síðunni við alls konar æfingar heima eða út í náttúrunni sem skapaði góða stemningu miðað við aðstæður.

Eftir að skipulagðar æfingar hófust á ný hefur aðsóknin verið mjög góð og hefur iðkendum fjölgað á ný. Ástæðan fyrir fjölguninni liggur að okkar mati í því að golfíþróttin hefur ákveðna sérstöðu sem einstaklingsíþrótt án snertingar þar sem hver og einn ber ábyrgð á sjálfum sér, notar eigin búnað, kylfur, bolta, hanska og fleira.“

Allir hlýða Víði

Hvernig gengur að hemja yngstu iðkendur í takti við tilmæli yfirvalda og sóttvarnalæknis?

„Æfingar hjá börnum á grunn- og leikskólaaldri hafa miðast við 50 manna fjöldatakmörkun og hafa yngstu kylfingarnir staðið sig frábærlega við að fylgja öllum fyrirmælum og eru þau afar þakklát fyrir að fá að stunda æfingar og hitta vini sína og vinkonur á nýjan leik á golfvellinum.

Á æfingatíma gilda skýrar reglur og förum við eftir tilmælum yfirvalda í einu og öllu ásamt því að sérstakar reglur hafa verið gefnar út fyrir æfingasvæði og hefðbundinn leik á golfvöllum til að útiloka sem flesta snertifleti og lágmarka smithættu.

Eins og áður sagði er golfið leikur án snertingar og hefur því fátt breyst í uppsetningu æfinga hjá okkur þjálfurunum fyrir utan það að við höldum notkun æfingatækja í lágmarki. Auðvelt er að halda fjarlægðarviðmiðum og hver og einn getur fengið sitt verkefni á æfingunni. Maður finnur því til með iðkendum og þjálfurum úr öðrum íþróttagreinum sem krefjast mikillar nándar og snertingar og erfitt getur verið að búa til keppnislíkar æfingar.

Íslendingar horfa hýru auga til golfíþróttarinnar um þessar mundir og hafa æfingasvæði og golfvellir verið fullir af reyndum kylfingum í bland við nýliða þar sem fleiri og fleiri horfa á golfið sem spennandi kost fyrir komandi sumar.“

Fyrstu skrefin geta verið ódýr

Snorri segir misskilnings gæta varðandi kostnað fyrir byrjendur í yngri aldurshópum.

„Það er mikill misskilningur að nýliðar þurfi að kosta miklu til með því að eiga fullt golfsett, golfpoka, golfkerru o.fl til þess að geta stigið fyrstu skrefin í íþróttinni. Í flestum tilvikum er hægt að fá kylfur lánaðar eða leigðar á æfingasvæðum og til þess að geta lært grunnatriði leiksins þarf viðkomandi einungis eina járnkylfu og pútter til þess að geta leikið og æft golf af krafti og bætt svo hægt og rólega í vopnabúrið eftir því sem áhugi og geta eykst. Starfsfólk golfverslana er fagfólk á sínu sviði og gefur kylfingum á öllum aldri og getustigum góð ráð við kaup á kylfum og búnaði.

Gott er að leita ráða hjá PGA-menntuðum golfkennara áður en farið er í golfverslunina þar sem golfkennarinn hefur góða yfirsýn og þekkingu á því yfir hvaða búnaður hentar hverjum og einum best. Samvinna kylfingsins, kennarans og golfverslunarinnar tryggir að kylfingurinn hefur forsendur til að gera góð kaup og fyrir vikið verður ánægjan af leiknum meiri.“

Uppbyggileg gildi í golfinu

Ýmislegt í golfíþróttinni er hollt að tileinka sér, jafnt fyrir unga sem aldna. Þar er lagt upp með að sýna keppinautum tillitssemi og virðingu.

„Golfið kennir okkur gildi og siði sem við tökum með okkur út í lífið. Golfið er einstaklingsíþrótt þar sem hver og einn ber fulla ábyrgð á sjálfum sér í leik og keppni. Við leggjum mikið upp úr því að iðkendur læri golfreglurnar og siði frá byrjun og hafi sterkar fyrirmyndir fyrir framan sig í okkar bestu kylfingum.

Golfið er oft kallað heiðursmannaíþrótt vegna þeirra siða sem tíðkast innan vallar meðan á leik stendur. Í keppni segja meðspilarar til nafns, takast í hendur og óska hvor öðrum góðs gengis áður en leikur hefst. Ef bolti er sleginn utan brautar hjálpast kylfingar að við að leita að boltanum óháð því að þeir séu að keppa sín á milli um að leika á sem fæstum höggum. Ef kylfingi tekst vel til og á gott högg fær hann hrós frá meðspilurum sínum og skapast þannig virðing milli kylfinganna þótt mikil barátta og spenna geti verið í keppninni.

Kylfingur nýtur trausts meðspilara sinna við að gefa upp rétt skor og fara eftir reglum leiksins í einu og öllu. Það er mjög einfalt að hafa rangt við í golfi með því að hagræða skori eða t.d. laga legu boltans þegar enginn sér til, slík hegðun er ekki liðin og heyrir til undantekninga að slík dæmi komi upp. Að hringnum loknum takast kylfingar í hendur og þakka fyrir leikinn óháð því hvernig keppnin eða leikurinn fór.

Það krefst aga að fara eftir leikreglum og siðum golfíþróttarinnar en það eru aftur á móti þessar reglur og siðir sem gæða íþróttina þeim sjarma sem hún býr yfir. Öll getum við dregið lærdóm af þeim siðum og gildum sem golfið kennir okkur og nýtt okkur hvort sem það er í daglegu lífi, skóla, vinnu eða almennum samskiptum.“

Ýmislegt innifalið í gjaldinu

Æfingar á sumrin fara að mestu fram í Grafarholtinu.

„Hjá GR eru skipulagðar æfingar með PGA-menntuðum þjálfurum í boði allt árið og þar sem börnin geta sótt 3 til 4 æfingar í viku auk ýmissa viðburða og fræðslu. Æfingar fara að mestu fram í Grafarholti á sumrin, bæði í Básum og á æfingasvæði í kringum Bása.

Við bjóðum einnig upp á innanfélagsmótaröð fyrir börn og unglinga í samstarfi við Icelandair Cargo sem hefur slegið í gegn undanfarin ár með góðri þátttöku. Leikin eru 10 mót yfir sumarið þar sem skipt er í flokka eftir aldri og getu og fá börn og unglingar eldskírn sína í keppnisgolfi á heimavelli sínum í ráshópum með æfingafélögum sínum. Aðstaðan í Grafarholti er á heimsmælikvarða og er vel nýtt af yngri kylfingunum á æfingatíma og utan æfingatíma.

Innifalið í æfingagjöldum barna og unglinga 18 ára og yngri er meðal annars fullur aðgangur að golfvöllum GR í Grafarholti og á Korpu. Aðgangur að allri æfingaðstöðu GR utan skipulagðra æfinga auk skemmtilegra viðburða, fræðslu og að sjálfsögðu þjálfunar í höndum PGA-menntaðra golfkennara árið um kring.“

Annað heimili yfir sumartímann

Dagurinn á golfvellinum er rétt að byrja hjá krökkunum þegar skipulagðri æfingu er lokið fyrri partinn.

„Með miklu aðgengi að aðstöðunni og golfvöllunum hefur orðið til þannig menning að venjulegur sumardagur hjá barni eða unglingi í GR byrjar á skipulagðri æfingu fyrri part dags með þjálfurum. Að henni lokinni er börnunum frjálst að gera það sem þau kjósa og verja mörg þeirra heilu og hálfu dögunum á golfvellinum og æfingasvæðunum. Foreldrarnir vita af börnunum í traustu umhverfi yfir daginn við ástundun á uppbyggilegri iðju í góðum félagsskap.

Er þetta stór liður í þeim góða árangri sem náðst hefur undanfarin ár og þeim góða anda sem býr í barna- og unglingastarfinu þar sem krakkarnir mynda vinatengsl og draga hvert annað áfram við æfingar og spil utan skipulagðra æfinga með þjálfurum. Flestir krakkar taka með sér gott nesti fyrir daginn á golfvellinum en veitingamenn í golfskálum á Korpu og í Grafarholti hafa auk þess verið okkur vinveittir með því bjóða upp á afsláttarkort fyrir börn og unglinga, 18 ára og yngri, sem veitir aðgengi að hollum og góðum mat á frábærum kjörum. Nauðsynlegt er að nærast til þess að halda dampi við æfingar og spil.“

Einnig æft á veturna

Snorri segir fólk oft vera undrandi á því hversu mikið er æft á veturna í ljósi staðsetningar Íslands á hnettinum.

„Það vekur kannski undrun þeirra sem stunda ekki golf að við sláum ekki slöku við yfir veturinn og sækir fjöldi barna æfingar innanhúss á Korpúlfsstöðum og í Básum. Foreldrafélag GR heldur svo úti púttmótaröð fyrir börn og foreldra alla sunnudaga frá áramótum og fram að vori þar sem góð stemning myndast. Setjast börn og foreldrar niður í mótslok og fá sér hressingu saman.

Æfingasvæðið í Básum tók nýlega í gagnið radarmælingabúnað sem heitir Trackman Range og geta kylfingar fengið mikilvægar upplýsingar um öll slegin högg í gegnum síma eða spjaldtölvu ásamt því að fara í skemmtilega leiki og keppnir. Fljótlega verður hægt að spila sýndargolf í gegnum búnaðinn þar sem í boði verður að leika marga af bestu völlum heims ásamt Korpúlfstaðavelli og Grafarholtsvelli í gegnum snjalltæki í Básum. Þessi tækni hefur vakið mikla lukku hjá yngri kylfingum okkar og hefur þetta nýst okkur þjálfurunum vel við að gera æfingarnar yfir vetrartímabilið markvissari og umfram allt skemmtilegri fyrir iðkendur okkar.

GR hefur einnig skipulagt og sótt æfingaferðir erlendis að vori til undanfarin 10 til 12 ár. Þar sameinast iðkendur og foreldrar við að fínslípa golfleikinn á grænu grasi við bestu aðstæður áður en golfvellirnir eru opnaðir og sumartímabilið hefst formlega heima á Íslandi. Börnin eru í skipulögðum æfngum og spili með þjálfurum sínum frá morgni til kvölds og foreldrar leika golf eða njóta sólarinnar samhliða,“ segir Snorri Páll.

Snorri Páll Ólafsson
» Yfirþjálfari barna-, unglinga- og afreksstarfs GR.
» Menntaður PGA-kennari og hefur komið að þjálfun og öðrum störfum innan GR undanfarin 15 ár.
» Meðlimur í GR síðan 1995 og fór sjálfur í gegnum barna unglinga- og afreksstarf GR sem ungur kylfingur.