Fangelsismálastofnun hefur ákveðið að aflétta öllum höftum vegna kórónuveirunnar er gilt hafa í fangelsum landsins frá því er neyðarstigi var lýst yfir. Tekur þetta gildi 25. maí nk.
Stofnunin segir í tilkynningu að áfram gildi þó áherslur sóttvarnaryfirvalda um handþvott, sprittun og almennt að virða tveggja metra regluna eftir því sem því verður við komið. Þá er einnig í gildi reglan um að þeir sem séu í sóttkví eða smitaðir eigi ekki að koma í fangelsi.
„Engir skjólstæðingar Fangelsismálastofnunar eða starfsmenn hafa smitast af veirunni og er full ástæða til að þakka starfsmönnum, samstarfsaðilum og föngum fyrir góða framgöngu við erfiðar aðstæður,“ segir í tilkynningunni.