Reyndur Manuel Neuer hefur leikið 398 leiki í Bundesligunni.
Reyndur Manuel Neuer hefur leikið 398 leiki í Bundesligunni. — AFP
Þýski knattspyrnumarkvörðurinn Manuel Neuer hefur framlengt samning sinn við þýska stórveldið Bayern München til ársins 2023. Neuer er 34 ára gamall og hefur leikið með Bayern í níu ár en hann kom til félagsins árið 2011 frá Schalke.
Þýski knattspyrnumarkvörðurinn Manuel Neuer hefur framlengt samning sinn við þýska stórveldið Bayern München til ársins 2023. Neuer er 34 ára gamall og hefur leikið með Bayern í níu ár en hann kom til félagsins árið 2011 frá Schalke. Hann hefur orðið sjö sinnum Þýskalandsmeistari með liðinu og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu, auk fjölda einstaklingsverðlauna. Þá hefur Neuer leikið 92 landsleiki fyrir Þýskaland, þar sem hann varði mark heimsmeistaraliðsins árið 2014.