Samfélagsmiðlastjarnan Hrefna Líf Ólafsdóttir eignaðist dótturina Heklu Ísold Sigurðardóttur fyrir tæpum sex vikum á Landspítala, 6. apríl, á hápunkti kórónuveirufaraldurs hér á landi.
Samfélagsmiðlastjarnan Hrefna Líf Ólafsdóttir eignaðist dótturina Heklu Ísold Sigurðardóttur fyrir tæpum sex vikum á Landspítala, 6. apríl, á hápunkti kórónuveirufaraldurs hér á landi. Kærasti og barnsfaðir hennar, Sigurður Gunnar Guðmundsson, rétt náði að koma inn á fæðingarstofuna til að verða vitni að fæðingu dóttur sinnar en vegna takmarkana til að vernda starfsfólk og sjúklinga Landspítalans voru aðstandendur ekki velkomnir á spítalann fyrr en virk fæðing væri komin í gang. Hrefna lýsti fæðingarsögu sinni fyrir blaðamanni en nánar er fjallað um málið á K100.is.