Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við höfum nýtt tímann meðan það var lokað til að hressa aðeins upp á staðinn og klára þessa hugmynd,“ segir Þórður Pálmason veitingamaður.
Þórður og eiginkona hans Auður Kristmannsdóttir hafa ákveðið að endurvekja hinn vinsæla tónleikastað Café Rosenberg sem þau ráku um árabil en seldu árið 2017.
Rosenberg var á árum áður við Lækjargötu en húsið eyðilagðist í bruna árið 2007. Rúmu ári síðar opnuðu þau staðinn á ný við Klapparstíg og ráku við góðan orðstír. Eftir að þau seldu reksturinn fyrir þremur árum entist staðurinn aðeins í um fimm mánuði áður en honum var lokað.
Hið endurreista Rosenberg verður við Vesturgötu 3. Þar var antíkbúðin Fríða frænka lengi til húsa en Þórður og Auður hafa rekið kaffihúsið Stofuna þar undanfarin ár.
„Við breytum bara nafninu í Rosenberg og hugmyndin er að fara meira í áttina að því sem gamli staðurinn var. Það er komið lítið svið í kjallarann og þar ættum við að geta tekið á móti 60-70 manns á tónleika þegar það verður leyft á ný,“ segir Þórður.
Margir fastagestir stunduðu Rosenberg á sínum tíma og stemningin á tónleikum þar var rómuð. Þórður játar því að kallað hafi verið eftir endurreisninni. „Já, bæði tónlistarmenn og fleiri. Það virðist vanta aðstöðu í bæinn fyrir minni tónleika og við ætlum að hafa „akústík“ fíling á tónlistinni.“