50 ára Aðalsteinn ólst upp á Fáskrúðsfirði en býr í Reykjavík. Hann er matreiðslumeistari frá Hótel Sögu og er matreiðslumaður hjá Advania. Aðalsteinn situr í stjórn Þríþrautarsambands Íslands. Maki : Linda Þorvaldsdóttir, f.
50 ára Aðalsteinn ólst upp á Fáskrúðsfirði en býr í Reykjavík. Hann er matreiðslumeistari frá Hótel Sögu og er matreiðslumaður hjá Advania. Aðalsteinn situr í stjórn Þríþrautarsambands Íslands.

Maki : Linda Þorvaldsdóttir, f. 1972, myndmenntakennari í Flataskóla í Garðabæ.

Börn : Þorvaldur, f. 2000, og Una, f. 2002.

Foreldrar : Friðrik Stefánsson, f. 1924, d. 2008, skipstjóri, og Elín Aðalheiður Þorsteinsdóttir, f. 1931, d. 2018, húsmóðir. Þau voru búsett á Fáskrúðsfirði og í Reykjavík.