Erfitt Lítil verkefni eru nú hjá Icelandair og starfsmönnum félagsins og standa þotur félagsins á Keflavíkurflugvelli.
Erfitt Lítil verkefni eru nú hjá Icelandair og starfsmönnum félagsins og standa þotur félagsins á Keflavíkurflugvelli. — Morgunblaðið/Eggert
Helgi Bjarnason Erla María Markúsdóttir Lífeyrissjóður verslunarmanna metur hugsanlega þátttöku í hlutafjárútboði Icelandair þegar útboðslýsing liggur fyrir.

Helgi Bjarnason

Erla María Markúsdóttir

Lífeyrissjóður verslunarmanna metur hugsanlega þátttöku í hlutafjárútboði Icelandair þegar útboðslýsing liggur fyrir. Stjórnarformaður lífeyrissjóðsins segir harðar kjaradeilur félagsins og flugfreyja óheppilegar við þessar aðstæður en telur að Icelandair eigi enga leið framhjá samningum við Flugfreyjufélag Íslands.

Flugfreyjufélag Íslands hafnaði í gær á fundi hjá ríkissáttasemjara samningstilboði Icelandair sem félagið sagði lokatilboð sitt. Telur Icelandair að ekki verði lengra komist í viðræðunum. Markmið Icelandair var að gera breytingar á ákvæðum samninga til að skapa grundvöll til hagræðingar, á svipuðum nótum og samið hefur verið um við flugmenn og flugvirkja.

Sama dagskrá hluthafafundar

Fram hefur komið að slíkir samningar eru forsenda þess að félagið geti farið í hlutafjárútboð á næstunni. Boðað hefur verið til hluthafafundar á morgun þar sem á dagskrá er tillaga um hækkun hlutafjár. Fram hefur komið að ætlunin er að safna allt að 200 milljónum Bandaríkjadala sem svarar til nærri 29 milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu er dagskrá fundarins óbreytt, þrátt fyrir að viðræðum við flugfreyjur hafi verið slitið.

Íslenskir lífeyrissjóðir eru stórir hluthafar í Icelandair og er Lífeyrissjóður verslunarmanna þeirra stærstur. Stefán Sveinbjörnsson, formaður stjórnar sjóðsins, segir að þátttaka lífeyrissjóðsins í hlutafjárútboðinu verði metin þegar útboðslýsing liggur fyrir. Nánar spurður um líkurnar á þátttöku segir hann ómögulegt um þær að segja. Þær upplýsingar sem liggi fyrir um hvernig reksturinn verður séu óljósar. Bíða verði eftir útboðslýsingu þar sem áætlanir félagsins verði skýrðar. Spurður um aðkomu lífeyrissjóðsins í aðdraganda útboðslýsingarinnar segir Stefán að hún hafi engin verið og sjóðurinn ekki sett nein skilyrði fyrir þátttöku.

Skiptar skoðanir um leikreglur

Stefán er framkvæmdastjóri VR og fulltrúi félagsins í stjórn lífeyrissjóðsins. Spurður um áhrif harðra kjaradeilna Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands í aðdraganda hlutafjárútboðsins segir hann þær óheppilegar. Spurður um afstöðu til útboðsins ef Icelandair ræður flugfreyjur á öðrum samningum segir hann það ekki raunhæft. Félagar í Flugfreyjufélaginu hafi forgang til starfa þar samkvæmt gildandi kjarasamningum.

Guðlaug Líney Jóhannsdóttir, formaður Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ), segir að lokatilboð Icelandair feli í sér afarkosti. Það tíðkist ekki almennt í kjaraviðræðum á Íslandi. ASÍ telur að lífeyrissjóðum sé ekki stætt á að fjárfesta í fyrirtækjum sem ganga gegn leikreglum á íslenskum vinnumarkaði.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að félagið hafi farið eftir settum leikreglum á íslenskum vinnumarkaði með því að gera samninganefnd flugfreyja lokatilboð.

Segir hann að hluthafafundurinn verði haldinn á morgun og þar verði farið yfir stöðu samningaviðræðna. Bendir hann á að gengið hafi verið frá samningum við tvær af þessum mikilvægu flugstéttum en einn samningur sé ókláraður.