Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Horfa ætti til þess að flýta framkvæmdum við Borgarlínu og aðrar samgöngubætur. Við núverandi aðstæður í efnahagslífinu er slíkt kjörið. Þetta segir Dagur B.

Sigurður Bogi Sævarsson

sbs@mbl.is

Horfa ætti til þess að flýta framkvæmdum við Borgarlínu og aðrar samgöngubætur. Við núverandi aðstæður í efnahagslífinu er slíkt kjörið. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, í viðtali við Morgunblaðið í dag.

Með samþykkt Alþingis á nýrri samgönguáætlun á dögunum er hægt að hefjast handa um gerð Borgarlínunnar, en í fyrsta áfanga er leið hraðfara strætisvagna úr miðborg Reykjavíkur í Höfðahverfið og í Hamraborg í Kópavogi. Borgarstjóri væntir að hönnun þessara framkvæmda ljúki næsta vetur og að vagnarnir verði komnir á leið eftir þrjú ár hið mesta.

„Reyndar horfi ég til þess að samgönguverkefnunum, sem eiga að kosta 120 milljarða í heild og vinnast á 15 árum, verði flýtt,“ segir borgarstjóri.

Með því að auka vægi almenningssamgangna í umferðinni segir Dagur að rýmkist um aðra umferð á samgönguæðum höfuðborgarsvæðisins. Einkabíllinn fái meira rými, en einnig sé skapað svigrúm fyrir þá sem ganga, hlaupa eða fara leiða sinnar á reiðhjóli. Deilibílar eigi sömuleiðis að vera sjálfsagður samgöngukostur. „Í framtíðinni verða ferðavenjur flestra meiri blanda ólíkra kosta en nú. Því er okkur nauðsynlegt að komast út úr þeim skotgrafahernaði að líta á að einhver einn ferðamáti skuli ráða,“ segir Dagur.

Stöðu borgarsjóðs segir borgarstjóri vera sterka. Hins vegar séu blikur á lofti ef kórónuveirufaraldurinn dragist á langinn. Í þeim aðstæðum sé niðurskurður í rekstri borgarinnar eða framkvæmdastopp ekki svarið. Mikilvægt sé að opinberir aðila taki nú höndum saman og fleyti atvinnulífinu yfir erfiðan hjalla.