Icelandair flutti ríflega 73 þúsund farþega í nýliðnum júlímánuði og fjölgaði þeim mjög milli mánaða sem tóku sér far með félaginu.
Í júnímánuði voru farþegarnir aðeins 18.494. Þrátt fyrir hinn mikla vöxt milli mánaða fækkaði farþegum í júlímánuði um 87% miðað við sama mánuð í fyrra.
Hinn aukni farþegafjöldi milli mánaða gerir það að verkum að sætanýting jókst mikið eða úr 50,9% í júní í 70,3% í júlímánuði.
Hið aukna nýtingarhlutfall skýrist einnig af því að fyrirtækið hefur dregið gríðarlega úr framboðnum sætiskílómetrum. Nemur samdrátturinn m.v. þann mælikvarða 89%.
Samkvæmt upplýsingum frá Icelandair var fjöldi farþega til Íslands um 58.200 í júlí en aðeins um 13.300 manns fóru frá landinu yfir sama tímabil.
Bogi Nils Bogason, forstjóri fyrirtækisins, segir að sífellt endurmat fari fram á þróun mála með tilliti til breytinga á ferðatakmörkunum.
„Eftir að ferðatakmörkunum í Evrópu var aflétt útvíkkuðum við flugáætlun okkar verulega í júlímánuði. Farþegafjöldi jókst umtalsvert í kjölfarið þótt enn sé töluverður samdráttur á milli ára vegna kórónuveirufaraldursins.“ ses@mbl.is