[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ljósi punkturinn Dóra Júlía dorajulia@k100.is Hin 8 ára gamla Paige Calendine er kraftmikil ung afrekskona í fimleikum. Paige fæddist án fótleggja og 18 mánaða gömul sendu foreldrar hennar hana í fimleika til þess að styrkja efri búk sinn.

Ljósi punkturinn

Dóra Júlía

dorajulia@k100.is

Hin 8 ára gamla Paige Calendine er kraftmikil ung afrekskona í fimleikum. Paige fæddist án fótleggja og 18 mánaða gömul sendu foreldrar hennar hana í fimleika til þess að styrkja efri búk sinn. Það var erfitt fyrstu árin en hægt og rólega fór hún að ná góðum tökum og fimleikarnir veita henni mikla gleði. Hana dreymir um að verða fimleikakona og er nú þegar orðin mikill innblástur fyrir aðra. Hún leggur mikla áherslu á að allt sé hægt og lætur ekkert stoppa sig.

Faðir Paige, maður að nafni Sean Calendine, er virkilega stoltur af dóttur sinni og segir magnað að fylgjast með henni verða betri og betri. Í byrjun árs keppti Paige í fyrsta skipti í fimleikum á Arnold Sports Festival og æfir hún af miklum krafti hjá Xcel-liði Zanesville Gymnastics. Liðið leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt úrval æfinga, með frelsi og sköpunargleði að leiðarljósi sem hvert og eitt barn getur lagað sig að. Paige hefur vakið mikla athygli og farið í viðtöl víða þar sem hún deilir boðskap sínum og krafti. Það verður spennandi að fylgjast með þessari flottu stúlku blómstra og án efa hvetja fleiri til þess að elta draumana sína og trúa á sig.