Á skotskónum Ingibjörg Sigurðardóttir tryggði sigurinn.
Á skotskónum Ingibjörg Sigurðardóttir tryggði sigurinn. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Vålerenga vann dramatískan 2:1-sigur á Røa í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Íslenska landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði sigurmark Vålerenga í blálokin af stuttu færi eftir undirbúning Marie Dølvik Markussen.

Ingibjörg var í byrjunarliði Vålerenga og lék allan leikinn. Hefur hún leikið alla sjö leiki Vålerenga á leiktíðinni frá upphafi til enda og skorað tvö mörk. Kom hún til félagsins frá Djurgården í Svíþjóð fyrir leiktíðina. Vålerenga er í öðru sæti með 16 stig. sport@mbl.is