Ólafur Karl Finsen
Ólafur Karl Finsen
Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen er kominn til FH að láni frá Val. Gildir lánssamningurinn út tímabilið samkvæmt tilkynningu frá FH í gær. Hafði Valur áður hafnað tilboði FH í leikmanninn, en félögin hafa gert með sér samkomulag um lánssamning.
Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen er kominn til FH að láni frá Val. Gildir lánssamningurinn út tímabilið samkvæmt tilkynningu frá FH í gær. Hafði Valur áður hafnað tilboði FH í leikmanninn, en félögin hafa gert með sér samkomulag um lánssamning. Hefur Ólafur lítið sem ekkert fengið að spila með Val í sumar, en hann kom til félagsins fyrir þremur árum. Ólafur hefur leikið 132 leiki í efstu deild með Stjörnunni, Val og Selfossi og skorað í þeim 32 mörk. Þá á hann að baki tvo A-landsleiki.