Svíþjóð Anna Rakel Pétursdóttir lét að sér kveða en það dugði ekki til.
Svíþjóð Anna Rakel Pétursdóttir lét að sér kveða en það dugði ekki til. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rosengård er í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Liðið burstaði Linköping 7:1 í gær en Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörninni. Mimmi Larsson skoraði fimm mörk í leiknum.

Rosengård er í 2. sæti sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Liðið burstaði Linköping 7:1 í gær en Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörninni. Mimmi Larsson skoraði fimm mörk í leiknum.

Svava Rós Guðmundsdóttir lék með Kristianstad sem vann Växjö 2:0 en Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar Kristianstad. Anna Rakel Pétursdóttir lagði upp mark Uppsala í 2:1 tapi gegn Örebro. Þá skildu Djurgården og Piteå jöfn, 1:1, í Piteå. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Djurgården.