Supersport! Hljómsveitina skipa, f.v., Hugi, Þóra Birgit, Dagur og Bjarni Daníel sem er fremstur á myndinni.
Supersport! Hljómsveitina skipa, f.v., Hugi, Þóra Birgit, Dagur og Bjarni Daníel sem er fremstur á myndinni. — Ljósmynd/Thelma Stefánsdóttir
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljómsveitin Supersport! gaf á dögunum út Dog Run , fimm laga plötu á vef Post-dreifingar, hins mikilvirka listasamlags og útgáfufélags.

Helgi Snær Sigurðsson

helgisnaer@mbl.is

Hljómsveitin Supersport! gaf á dögunum út Dog Run , fimm laga plötu á vef Post-dreifingar, hins mikilvirka listasamlags og útgáfufélags. Er það fyrsta EP-plata sveitarinnar sem skipuð er Bjarna Daníel Þorvaldssyni sem syngur og leikur á gítar, Degi Reykdal Halldórssyni sem leikur á trommur og slagverk, Huga Kjartanssyni sem leikur á hljómborð, sólógítar og syngur og Þóru Birgit Bernódusdóttur sem leikur á rafbassa og syngur.

Við fyrstu hlustun sker sig strax úr kunnugleg og nokkuð sæt söngrödd Bjarna og glúrnir textar en Bjarni er einnig í hljómsveitinni Bagdad Brothers sem notið hefur allnokkurra vinsælda hin síðustu misseri. Textarnir eru svo bæði furðulegir og á köflum óvenjuheiðarlegir, t.d. við lagið „Ég smánaði mig“ en hann er á þessa leið:

ég smánaði mig

í bænum um helgina

í leit að viðurkenningu

skammaðist mín,

grét smá í strætó

og sofnaði einn

ég elska ekki neinn

það elskar enginn mig

hvers virði er það að vera til?

og draga andann

í andlausum heimi

og berjast við að vera til

Nýtt verkefni

Blaðamaður sló á þráðinn til Bjarna á dögunum en hann var þá nýkominn úr stúdíói með Supersporti! Bjarni er í þremur hljómsveitum og hefur því nóg að gera en þriðja hljómsveitin er Skoffín og er líka hjá Post-dreifingu.

Bjarni er beðinn um að segja frá Supersporti!, hvernig sveitin varð til og hvers vegna. „Við Þóra bassaleikari vorum búin að vera að spila saman í Bagdad Brothers og ákváðum að stofna nýtt verkefni í kringum okkar lagasmíðafélagsskap. Við vorum búin að vera að semja lög og ákváðum að taka nýja stefnu og prófa eitthvað annað,“ segir Bjarni. Bættust þá við Dagur og Hugi en Bjarni og Dagur voru saman í hljómsveit sem unglingar.

Höfundur allra texta

–Um leið og ég byrjaði að hlusta á lögin ykkar tengdi ég við Bagdad Brothers út af söngstíl þínum og sérstakri söngrödd. Er þetta þín náttúrulega söngrödd?

„Hún er eiginlega bara orðin það, ég hef ekki alltaf sungið svona en þegar maður er farinn að venja sig á að beita röddinni með ákveðnum hætti festist það svolítið. Ég held að hún komi svolítið til af því að ég hlustaði mikið á The Smiths sem unglingur,“ svarar Bjarni. Hann segist hafa verið í Drengjakór Reykjavíkur sem ungur drengur og að það hafi verið dýrmæt reynsla og lærdómsrík.

–Textarnir eru bæði óvenjulegir og mjög skemmtilegir og þú skrifar þá alla?

„Jú, ég skrifaði alla textana á þessari plötu,“ svarar Bjarni og er í framhaldi spurður að því hvernig hann fái hugmyndirnar að þeim. Hann segir það misjafnt en lög og textar á Dog Run hafi komið að mestu samhliða. „Þegar ég er að setja saman einhvern hljómagang er einhver tilfinning sem fylgir því og svo á þetta líka til að koma upp úr samtölum sem ég á við Þóru þegar við erum að semja lögin. Til dæmis lagið „Ég smánaði mig“, ég var kominn með smáhugmynd að texta þar en það var óljóst hvert hún var að fara. Eftir gott spjall sem við áttum um erfiða helgi kom textinn,“ segir Bjarni kíminn.

Innblástur úr nærumhverfinu

–Maður veltir fyrir sér hvort textarnir byggi á sönnum atburðum, hvort þeir séu sannsögulegir?

„Þeir eru allir einhvern veginn sannsögulegir en þó ekki allir samdir út frá mínu sjónarhorni. Í einhverjum tilfellum set ég mig í spor fólks í kringum mig því innblásturinn er alltaf úr nærumhverfinu og úr mínu lífi.“

–Þú ert bæði opinn og heiðarlegur?

„Ég reyni að vera það en ég held samt að ekkert sé til sem heitir einlægni í tónlist, þannig séð, maður setur alltaf upp einhverja grímu,“ svarar Bjarni. Leitin sé þó stöðug að einhvers konar heiðarleika og hreinleika. Bjarni segir lagið oftast koma aðeins á undan textanum og segist frekar líta á sig fyrst og fremst sem lagasmið frekar en textasmið.

Maður að reykja pípu

Í laginu „Það er maður inní herberginu mínu“ syngur Bjarni um mann sem er inni í herberginu hans að reykja pípu. „Það er maður inní herberginu mínu, ætli hann viti að hann sé týndur og heima hjá mér? Er hann kannski týndur inní hausnum á sér?“ syngur Bjarni. Hann er spurður að því hvort þessi texti sé byggður á raunverulegum atburði og segist hann sposkur ekki vita hversu mikið hann megi segja um það. Þó megi segja að maður hafi verið að reykja pípu í herberginu hans.

En hvernig myndi hann lýsa tónlistinni? „Er þetta ekki bara poppmúsík?“ spyr Bjarni á móti og blaðamaður getur ekki mótmælt því. Innblásturinn kemur þó víða að. „Við sækjum innblástur héðan og þaðan, höfum mikið verið að hlusta á folk pop nýlega og djass. En svo eru það líka poppstandardar eins og Bítlarnir og líka bönd eins og Mannakorn og Stuðmenn,“ segir Bjarni.

Aðrar leiðir

Þeir sem vilja kynna sér hljómsveitina geta gert það á slóðinni post-dreifing.bandcamp.com/album/dog-run-ep. Þar má einnig styrkja hljómsveitina með því að kaupa eintak af plötunni en einnig má hlusta á hana án greiðslu. „Við leggjum mikið upp úr því hjá Post-dreifingu að hafa allt útgefið efni mjög aðgengilegt,“ segir Bjarni og blaðamaður spyr hvort þessi leið sé að skila einhverjum tekjum til þeirra. „Það er bara misjafnt,“ svarar Bjarni, „en það er ekki punkturinn, við erum að þessu fyrir ástríðuna og menninguna og til að sýna fólki að það eru til aðrar leiðir til að nálgast tónlistarsköpun en þær sem fólk á að venjast í ofurmarkaðsvæddu bransaumhverfi.“