Damian Lillard jafnaði hæsta stigaskor sitt á NBA-ferlinum þegar hann skoraði 61 stig í 134:131-sigri Portland Trail Blazers gegn Dallas Mavericks en hann skoraði einnig 61 stig í janúar. Lillard hefur þrívegis skorað 60 stig eða meira.
Damian Lillard jafnaði hæsta stigaskor sitt á NBA-ferlinum þegar hann skoraði 61 stig í 134:131-sigri Portland Trail Blazers gegn Dallas Mavericks en hann skoraði einnig 61 stig í janúar. Lillard hefur þrívegis skorað 60 stig eða meira. Öll tilfellin eru á þessu keppnistímabili.
Fjörutíu og einu sinni hefur leikmaður skorað 60 stig eða fleiri í leik í NBA en fáir hafa afrekað það oftar en einu sinni. Ásamt Lillard eru það Wilt Chamberlain, Kobe Bryant, James Harden, Michael Jordan og Elgin Baylor. kris@mbl.is