Vinsæl á samfélagsmiðlum Elenora er á Instagram sem #bakaranora þar sem hún er dugleg að deila góðum ráðum með fylgjendum sínum.
Vinsæl á samfélagsmiðlum Elenora er á Instagram sem #bakaranora þar sem hún er dugleg að deila góðum ráðum með fylgjendum sínum.
Þær stórfréttir berast úr bakaraheiminum að einn vinsælasti bakaranemi og bakara-áhrifavaldur landsins sé að senda frá sér sína fyrstu bók í haust.

Þær stórfréttir berast úr bakaraheiminum að einn vinsælasti bakaranemi og bakara-áhrifavaldur landsins sé að senda frá sér sína fyrstu bók í haust. Um er að ræða afar fjölbreytta bók sem ætti að nýtast öllum þeim sem langar að ná fullkomnu valdi á súrdeigsbakstri, prófa spennandi uppskriftir eða baka dýrindissætabrauð eftir kúnstarinnar reglum.

Bakaraneminn Elenora Rós Georgesdóttir er búin að hasla sér völl sem einn vinsælasti bakari landsins á samfélagsmiðlum þar sem fylgjendafjöldi hennar eykst dag frá degi.

Elenora hefur jafnframt verið vinsæll gestur í Ísland vaknar á K 100 þar sem hún heillar þjóðina enda þykir hún sérlega skemmtilegur og heillandi viðmælandi.

Og nú ber til tíðinda því að von er á fyrstu bók bakaradrottningarinnar í haust. Að sögn Elenoru fjallar bókin fyrst og fremst um súrdeig og súrdeigsbakstur en inn í það blandast bakstur á sætabrauði og öðrum dásemdum eins og henni einni er lagið.

Elenora segir að markmiðið hafi verið að búa til bók sem innihéldi bæði nákvæma kennslu á súrdeigsbakstri sem vefst fyrir mörgum en er fremur einfaldur. Að auki sé allskonar sætabrauð í bókinni sem vonandi mælist vel fyrir.

Elenora starfar á veitingastaðnum í Bláa lóninu en stutt er síðan Elenora var með pop-up á Deig þar sem löng röð myndaðist fyrir opnun og allt kláraðist á skammri stundu.

Ljóst er því að bókin verður mikill hvalreki fyrir brauðunnendur og heimabakara landsins enda verður bókin sneisafull að ómótstæðilegum uppskriftum ef marka má orð Elenoru.