Hin dásamlega Haustjógúrt frá Örnu er komin í verslanir en það þykir alltaf heyra til tíðinda enda ein vinsælasta jógúrt landsins - og örugglega sú bragðbesta ef marka má fjölmarga aðdáendur hennar. Eins og fyrri ár er jógúrtin eingöngu framleidd í takmörkuðu upplagi.

Að sögn Örnu Maríu Hálfdánardóttur, sölu- og markaðsstjóra Örnu, er haustjógúrtin í þeirra huga skemmtilegt samstarfsverkefni. „Það hefur sýnt sig í gegnum tíðina að þetta hefur reynst vera kjörið tækifæri fyrir aðila í fjáröflunarhugleiðingum, til dæmis fyrir íþróttafélög og þess háttar. Við auglýsum því eftir aðilum sem langar að vera með í þessu með okkur og við munum byrja að taka á móti berjum mánudaginn 17. ágúst. Þrátt fyrir allt sem hefur gengið á síðustu mánuði þá gengur sumt bara sinn vanagang. Aðalbláberin í hlíðunum þroskast dag frá degi og það er útlit fyrir ansi góða berjasprettu þetta árið. Þau eiga þó nokkra daga í land (hér fyrir vestan að minnsta kosti) og það er því þolinmæðin sem gildir, í þessu eins og öðru, segir Arna og bætir við að ekki sé sjálfgefið að landeigendur vilji berjatínslufólk á sínum landssvæðum og því sé gullna regla ætíð sú að biðja um leyfi ef leiðin liggur um land í einkaeigu.

Tekið verður á móti berjum í húsnæði Örnu á Bolungarvík alla virka daga milli klukkan 12 og 14.

„Við erum staðsett við Hafnargötu 80, beint á móti hinni einstöku Bjarnabúð sem við mælum eindregið með fyrir ferðalanga. Fyrir nánari upplýsingar þá endilega sláið á þráðinn til okkar í síma 456-5600 eða sendið okkur línu á netfangið arna@arna.is.