Spil fyrir spil. S-Allir
Norður | |
♠74 | |
♥975 | |
♦ÁD9873 | |
♣63 |
Vestur | Austur |
♠KD853 | ♠G962 |
♥D8432 | ♥KG10 |
♦G6 | ♦K54 |
♣9 | ♣D72 |
Suður | |
♠Á10 | |
♥Á6 | |
♦102 | |
♣ÁKG10854 |
Suður spilar 5♣.
Hvort sem samningurinn er 5♣ eða 3G er lykilatriði að hitta í laufið, svína fyrir drottninguna þriðju í austur frekar en leggja niður ♣ÁK. Keppendur MontreAlt-netmótsins gerðu það almennt ekki og fóru niður, nema Birkir Jón Jónsson og Englendingurinn David Gold. Þeir rötuðu réttu leiðina í 5♣ eftir hálitainnákomu vesturs. Báðir fengu út spaðakóng.
Spilamennskan var sú sama, spil fyrir spil: Drepið á spaðaás, tekið á laufás og tígultíu spilað á drottningu. Austur drap, tók slag á spaðagosa og skipti yfir í hjarta. Ásinn upp og tígli spilað – gosi og ás. Hjartahundurinn heima fór næst niður í tígulníu og loks svínuðu þeir Birkir og Gold fyrir sannaða drottningu í austur. Ellefu slagir.
Andstæðingar Birkis og Jóns Baldurssonar á hinu borðinu voru Bandaríkjamennirnir Brad Moss og Joe Grue. Vestur sagði aldrei neitt og Moss fór einn niður á 3G, tók ♣ÁK.