George Soros
George Soros
Einelti þykir vont. Allt nema einelti gegn miðaldra körlum. Þótt slíkir væru í útrýmingarhættu þætti rétt að halda eineltinu áfram. Ekki er vitað hvort miðaldur eldist af karlfyglunum og þeir komist úr skætings- og skotfæri.

Einelti þykir vont. Allt nema einelti gegn miðaldra körlum. Þótt slíkir væru í útrýmingarhættu þætti rétt að halda eineltinu áfram. Ekki er vitað hvort miðaldur eldist af karlfyglunum og þeir komist úr skætings- og skotfæri.

Og enginn veit hvort konur verði miðaldra og ættu að sæta aðkasti þess vegna. Enda væri rasismi, fasismi eða weinsteinvonska að klína útskúfun miðaldurs á konur.

Í gær varð millinn Soros níræður. Hann náði aldrei að verða miðaldra. Enda studdi hann göfugan málstað opinna landamæra fyrir ofsafé. Og þótt Soros eigi tíu milljarða dollara slapp hann líka við að verða „stöndugur stútungskarl með óboðlegar skoðanir“.

Sumir hinna miðöldruðu trúa því að hluti vandræða veraldar stafi frá Soros og sjóðum hans. Og miðað við það sem sá karl er sakaður um er hann ótrúlega ern.

Hann græddi fúlgur fjár með stöðutöku gegn Bretum og Svíum sem asnast höfðu inn í ERM, myntráðið sem var aðgöngumiði að upptöku evru. Kohl kanslari lofaði Major forsætisráðherra Breta því, að yrði gerð árás á pundið á bindingartíma ERM myndi Þýskaland tryggja að það stæði árásina af sér. Árásin var gerð, Kohl vildi standa við sitt en þýski seðlabankinn setti fótinn fyrir.

Soros græddi ógurlega en tryggði óvart að Bretar og Svíar yrðu utan evru.