— Morgunblaðið/Eggert
Gróðurhús á Lækjartorgi hefur vakið athygli vegfarenda en þar er að finna ýmsar plöntutegundir sem gleðja augað. Í mörg horn er að líta í húsinu gróðursæla en starfsmenn Reykjavíkurborgar sinntu því af natni undir sólargeislum gærmorgunsins.
Gróðurhús á Lækjartorgi hefur vakið athygli vegfarenda en þar er að finna ýmsar plöntutegundir sem gleðja augað. Í mörg horn er að líta í húsinu gróðursæla en starfsmenn Reykjavíkurborgar sinntu því af natni undir sólargeislum gærmorgunsins. Þrátt fyrir sólríkt árdegi gærdagsins er ekki útlit fyrir að til sólar sjáist í borginni í dag. Hún ætti þó að gleðja borgarbúa á nýjan leik á morgun.