Engin áhætta. N-AV
Norður | |
♠KG52 | |
♥G | |
♦KD3 | |
♣ÁKD98 |
Vestur | Austur |
♠Á94 | ♠1086 |
♥Á106 | ♥K98754 |
♦ÁG962 | ♦1074 |
♣104 | ♣6 |
Suður | |
♠D73 | |
♥D32 | |
♦85 | |
♣G7532 |
Suður spilar 4♠.
Indverjinn Naren Gupta og liðsmenn hans unnu Red Devils í úrslitaleik MontreAlt-netmótsins, 99-66 í 32 spilum. Fyrirliðinn Gupta er áhættufjárfestir, sem keypt hefur grimmt í sprotafyrirtækjum í Kísildal og efnast vel. En hann tekur enga sénsa í brids. Þar velur hann mannskapinn eftir reynslu og árangri. Makker hans var sjálfur Zia, og með þeim spiluðu Hollendingarnir Bauke Muller-Simon de Wijs og Frakkarnir Cedric Lorenzini-Thomas Bessis.
Frakkarnir voru heppnir í spilinu að ofan. Bessis vakti á Standard-laufi og Lorenzini gat ekki fengið sig til að passa með 5 punkta og sagði 1♠ á þrílitinn. Bessis stökk í 4♥ til að sýna stuttlit og slemmuáhuga (splinter), en Lorenzini fékkst ekki upp úr 4♠.
Útspilið var tígulás og tían í frá austri – annaðhvort frávísun eða hreinlega einspil. Vestur veðjaði á hið síðarnefnda og spilaði tígli áfram. Tíu slagir.