Einbeittur Damian Lillard #0 fer hamförum í NBA-leikjum í Orlando um þessar mundir.
Einbeittur Damian Lillard #0 fer hamförum í NBA-leikjum í Orlando um þessar mundir. — AFP
NBA Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Síðan keppnin í NBA-boltanum hófst aftur um mánaðamótin í „kúlunni“ svokölluðu í Disney-landi í Orlando í Bandaríkjunum hefur einn maður skarað alveg sérstaklega fram úr.

NBA

Kristófer Kristjánsson

kristoferk@mbl.is Síðan keppnin í NBA-boltanum hófst aftur um mánaðamótin í „kúlunni“ svokölluðu í Disney-landi í Orlando í Bandaríkjunum hefur einn maður skarað alveg sérstaklega fram úr. Bakvörðurinn Damian Lillard hefur verið ótrúlegur síðasta hálfa mánuð með liði Portland Trail Blazers sem er komið í umspil um að taka þátt í úrslitakeppninni sjálfri. Lillard jafnaði hæsta stigaskor sitt á ferlinum þegar hann skoraði 61 stig í sigri gegn Dallas í vikunni en hann hefur þrívegis skorað 60 stig eða meira á keppnistímabilinu. Það er ekkert grín.

Í hópi goðsagna

Fjörutíu og einu sinni hefur leikmanni NBA-deildarinnar tekist að skora 60 stig eða fleiri í leik en það gerðist fyrst árið 1949. Lillard er aðeins sá sjötti frá upphafi sem tekst að gera það þrisvar sinnum og er hann þar í hópi goðsagna; Wilt Chamberlain, Kobe Bryant, James Harden, Michael Jordan og Elgin Baylor. Þá er Lillard sá eini ásamt Chamberlain til að afreka þetta þrekvirki þrisvar sinnum á einu og sama tímabilinu! Við erum því ekkert að tala um neitt smámál en engu að síður er Lillard körfuboltamaður sem hefur allan sinn feril átt í erfiðleikum með að komast til vegs og virðingar í íþróttinni.

Lillard varð þrítugur í sumar, hann fæddist í Kaliforníu og eftir farsælan feril í háskólaboltanum gekk hann til liðs við Portland í nýliðavalinu 2012. Hann var strax valinn nýliði ársins í frumraun sinni í NBA og hefur unnið til þó nokkurra afreka síðan, meðal annars verið valinn í stjörnulið deildarinnar fimm sinnum, 2014, 2015, 2018-2020. Hann er dáður í Portland, ekki bara fyrir takta sína á körfuboltavellinum heldur fyrir líknarlund sína í samfélaginu. Þá mun hann eiga fyrir salti í grautinn út ævina; hann er sem stendur með fimm ára samning hjá Portland sem skilar honum 140 milljónum Bandaríkjadollara og talinn þéna annað eins frá styrktaraðilum sínum. Hann er líka að eiga sitt besta tímabil í ár, hefur skorað 29,8 stig að meðaltali í leik og ásamt því að skora yfir 60 stig þrisvar er hann búinn að skora yfir 50 stig sex sinnum. Hann á fjóra stigahæstu leiki Portland í sögu félagsins. En hvað er þá vandamálið?

Ósáttur við umfjöllun

„Þið þurfið að bera meiri virðingu fyrir nafninu mínu!“ hreytti Lillard í átt til fámenns hóps blaðamanna á áhorfendalausum leik Portland og Dallas. Þar á milli voru formælingarorð sem verða ekki endurtekin hér. Þótt tilteknir blaðamenn séu ekki endilega í sérstökum hópi þeirra sem gera annað slagið lítið úr frammistöðu Lillards, þá er alveg ljóst að hann er ekki allra.

„Enginn fagnar Golíat,“ sagði goðsögnin Chamberlain einu sinni um það hvernig kollegi hans og andstæðingur Bill Russell fékk gjarnan meiri hygli frá fjölmiðlum. Lillard sjálfur virðist þekkja þá tilfinningu.

Þrátt fyrir nokkra frábæra leiki í Orlando var hann líka skúrkurinn í einum þeirra, þegar hann klúðraði tveimur vítaköstum á ögurstundu í tapleik gegn Los Angeles Clippers. Gagnrýnendurnir voru fljótir á fætur og fékk Lillard að heyra það á samfélagsmiðlum. Hann verður oft auðvelt skotmark og sennilega er bakvörðurinn aðeins of viðkvæmur fyrir hávaðanum í þokkabót. Þrátt fyrir þá ótrúlegu hæfileika sem hann vafalaust býr yfir, þá er samband hans við fjölmiðla oft stirt. Það hjálpar sennilega ekki að Portland gengur iðulega illa í úrslitakeppninni og Lillard fær því ekki þá hyllingu sem sigursælli leikmenn fá. Jafnvel þótt hann spili oft eins og þeir framan af keppni.

Lillard og félagar í Portland hafa aðeins einu sinni komist í úrslit vesturdeildarinnar og það var í fyrra. Þá töpuðu þeir illa gegn eldsprækum Kevin Durant og liðsfélögum hans í Golden State Warriors. Lillard var langt frá sínu besta í þeirri seríu og skaut hreinlega skelfilega í fjórða leikhluta allra leikjanna, þegar mest var undir.

Þarf Disney-kraftaverk

Portland fær annan séns í kúlunni. Að komast í úrslitakeppnina er í það minnsta raunhæft. Portland mætir Memphis Grizzlies í umspilsleik um síðasta lausa sætið. Miðað við hvernig Lillard hefur verið að spila undanfarna daga, myndi ég ekki veðja gegn honum þar. Takist þeim að komast í úrslitakeppnina bíður þeirra hins vegar LeBron James og Los Angeles Lakers. Lakers var á toppnum og búið að tryggja sér úrslitakeppnissæti áður en NBA-keppnin var stöðvuð í mars vegna kórónuveirunnar. Þó hefur liðið tapað fimm af átta leikjum sínum í Orlando en þar áður tapaði Lakers ekki nema fjórtán af 44 leikjum. Samt sem áður mun Portland, með Lillard í fararbroddi, þurfa eins og eitt Disney-kraftaverk til að bakvörðurinn knái fái loks þá virðingu sem hann telur sig eiga skilið í lok tímabils. Hann er í það minnsta á hárréttum stað, í „kúlunni“ frægu í ævintýralandinu sjálfu.