Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur gert samning við kanadíska markvörðinn Erin McLeod. Kemur hún að láni frá Orlando Pride í Bandaríkjunum út tímabilið.
Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur gert samning við kanadíska markvörðinn Erin McLeod. Kemur hún að láni frá Orlando Pride í Bandaríkjunum út tímabilið.
McLeod er mikill reynslubolti og hefur farið á fjögur heimsmeistaramót og tvenna Ólympíuleika með kanadíska landsliðinu. Vann hún brons á Ólympíuleikunum í London. Markvörðurinn er 37 ára og hefur leikið með liðum í Bandaríkjunum, Svíþjóð og Þýskalandi. Stjarnan er í 8. sæti Pepsi Max-deildarinnar með sjö stig.