Endurkoma Björn Bergmann Sigurðarson er kominn til Noregs.
Endurkoma Björn Bergmann Sigurðarson er kominn til Noregs. — Morgunblaðið/Eggert
Björn Bergmann Sigurðarson hefur gert samning við norska knattspyrnufélagið Lillestrøm, en liðið leikur í B-deildinni. Björn kemur til Lillestrøm frá Rostov í Rússlandi eftir lánsdvöl hjá APOEL á Kýpur. Gildir samningur Björns út tímabilið.
Björn Bergmann Sigurðarson hefur gert samning við norska knattspyrnufélagið Lillestrøm, en liðið leikur í B-deildinni. Björn kemur til Lillestrøm frá Rostov í Rússlandi eftir lánsdvöl hjá APOEL á Kýpur. Gildir samningur Björns út tímabilið. Björn þekkir vel til hjá Lillestrøm en hann lék með liðinu frá 2009 til 2012. Hjá Lillestrøm hittir Björn fyrir annan Skagamann en Arnór Smárason leikur með liðinu. Er Lillestrøm í níunda sæti norsku B-deildarinnar með ellefu stig eftir átta leiki.