Systkinabörnin Hólmfríður Kolbrún, 16 ára, og Hrafnkell Stefán, 13 ára, gerðu það bæði gott á Íslandsmótinu í siglingum kæna og unnu til gullverðlauna. Hrafnkell prófaði íþróttina af því að hann vissi af eldri frænku í íþróttinni og líkaði vel.
Systkinabörnin Hólmfríður Kolbrún, 16 ára, og Hrafnkell Stefán, 13 ára, gerðu það bæði gott á Íslandsmótinu í siglingum kæna og unnu til gullverðlauna. Hrafnkell prófaði íþróttina af því að hann vissi af eldri frænku í íþróttinni og líkaði vel. — Morgunblaðið/Eggert
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Systkinabörnin Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir og Hrafnkell Stefán Hannesson urðu bæði Íslandsmeistarar í siglingum kæna sem haldið var um síðustu helgi. Hólmfríður í opnum flokki og Hrafnkell í flokki Optimist. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is

Ég eyði öllum tímanum mínum í þetta. Ég er að vinna þarna allan daginn, þjálfa allan daginn og svo fer ég á æfingar á kvöldin alla virka daga,“ segir Hólmfríður Kolbrún Gunnarsdóttir, nýkrýndur Íslandsmeistari í siglingum kæna, við sunnudagsblaðið.

„Ég á eiginlega heima í klúbbnum,“ bætir hún við en hún keppir fyrir Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey. „Þetta er ástríðan mín.“

Íslandsmeistaratitillinn er fyrsti titill Hólmfríðar í opnum flokki. Hún er aðeins 16 ára en hefur æft siglingar í 6 ár eða frá 10 ára aldri. „Ég hafði einhvern veginn aldrei hugsað út í að vinna opna flokkinn,“ segir Hólmfríður, „en ég var mjög ánægð að hafa loksins unnið eftir að hafa æft öll þessi ár.“

Hún segir það ekki hafa verið markmiðið fyrirfram að vinna mótið en þegar nær dró mótinu varð hún staðráðin í að sigra.

Vil ná eins langt og ég get

Hólmfríður hefur farið til útlanda bæði til og æfinga og í keppni. „Ég hef verið að keppa í miklu stærri flotum úti,“ segir hún og á þar við að fjöldi þeirra sem sigla sé mun meiri, jafnvel 180 keppendur. „Það getur reynt mikið á andlega að vera í stærri flotum og keppa gegn eldri og sterkari krökkum. Það er mjög erfitt og krefjandi.“

Hún segir samkeppnina harðari þegar keppt er úti. „Þegar maður er fremstur í floti hér er það góð tilfinning en að vera með þeim 15 eða 20 fremstu úti er algjör sigur. Það er ótrúlegt að vera það framarlega.“

Hólmfríður stefnir á að keppa meira erlendis og standa sig betur í þeim stóru keppnum sem þar eru haldnar. „Ég ætla að verða eins góð og ég mögulega get og prófa mismunandi báta og njóta þess að vera í þessu.“

Nokkrir Íslendingar hafa komist svo langt í greininni að keppa í siglingum á Ólympíuleikum. Hólmfríður er þó ekki að stressa sig á því að komast þangað. „Það var alltaf markmiðið að ná mjög langt,“ segir hún. „En nú langar mig bara að þekkja siglingar, geta siglt hvaða bát sem er og kannski ná á eitt stórt mót úti. Evrópumót til dæmis.“

Hólmfríður tekur þó fram að þessar pælingar séu ekki fastmótaðar hjá henni. „Ég vil bara ná eins langt og ég get.“

Auðveldara að læra á bíl

Eins og Hólmfríður segir hér að framan þjálfar hún yngri krakka í greininni á námskeiðum siglingafélagsins. „Mér finnst það alveg æðislegt,“ segir hún en bætir við að hún vilji einbeita sér að sínum eigin siglingum áður en hún dembir sér í þjálfun.

Vegna aðstæðna á Íslandi er aðeins hægt að æfa siglingar hér yfir sumartímann. „Mér finnst það svolítið sorglegt því þetta er svo skemmtilegt. Að geta ekki farið út að sigla á veturna er svolítið erfitt og maður hlakkar alltaf til á vorin þegar það byrjar að birta,“ segir Hólmfríður sem einblínir því á að styrkja sig líkamlega yfir vetrartímann. „Svo er ég náttúrulega í þessu allan daginn á sumrin.“

Hólmfríður fer þó til útlanda til að æfa og nær þannig að brúa að einhverju leyti bilið milli æfingatímabila hér á landi.

Hún segir hóp þeirra sem æfa siglingar samheldinn. „Ég er búin að kynnast ótrúlega mörgu fólki. Bæði á Íslandi og í útlöndum. Við hér heima erum öll mjög náin, það er gaman að hafa áhuga á einhverju sameiginlegu,“ segir Hólmfríður.

„Við förum til dæmis í viku í æfingabúðir og þá erum við saman allan sólarhringinn.“

Reglurnar í siglingum eru flóknar. „Ég kann þær ekki næstum því allar,“ segir Hólmfríður. „En ég kann svona þær helstu. Það sem er svo erfitt við þetta er að maður þarf að meta þetta svo mikið sjálfur. Ef það gerist eitthvað þá þarf maður að meta aðstæður og vera alveg viss um hvað gerðist og hvernig.“

Svo flóknar eru reglurnar að henni finnst mun auðveldara að læra á bíl heldur en reglurnar. „Þetta er mjög flókið en maður venst því.“

Félagsskapurinn skemmtilegur

„Ég var búinn að æfa í langan tíma og það greinilega borgaði sig,“ segir Hrafnkell Stefán Hannesson sem varð Íslandsmeistari í flokki Optimist um liðna helgi.

Hrafnkell er 13 ára gamall og hefur æft hjá Brokey í þrjú ár. Þar áður mætti hann á námskeið í Siglunesi. Yfir sumartímann æfir Hrafnkell á hverjum degi. „Þetta er mjög skemmtilegt,“ segir hann.

Hrafnkell ákvað að prófa siglingar því hann vissi að frænka hans, Hólmfríður, æfði íþróttina. „Ég ákvað að sjá hvernig mér fyndist þetta. Mér fannst félagsskapurinn skemmtilegur, gaman að sigla og allt gekk vel og því ákvað ég að halda áfram.“

Hrafnkell stefnir á að keppa á Norðurlandamótinu sem á að fara fram í Danmörku í haust. Hann segir þó ekki víst hvort mótið verði haldið. „Það yrði mitt fyrsta mót í útlöndum,“ segir Hrafnkell sem myndi þá feta í fótspor frænku sinnar.

Hrafnkell segist hafa eignast marga vini í siglingunum. „Svo er alltaf að bætast við hópinn.“

Hann segir vel hægt að æfa siglingar hér á Íslandi þótt alls kyns veður geti mætt siglurunum. „Ef maður er með rétta búnaðinn í þetta er þetta ekkert mál,“ segir Hrafnkell sem er lítið smeykur við kuldann sem getur fylgt siglingunum.