Hrókur Markahrókurinn Robert Lewandowski fagnar í gærkvöldi.
Hrókur Markahrókurinn Robert Lewandowski fagnar í gærkvöldi. — AFP
Ekki gerist það á hverjum degi að elítulið í knattspyrnunni eins og FC Barcelona fái á sig 8 mörk í leik en það gerðist í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær þegar Bayern München rassskellti Barcelona 8:2 í Lissabon.
Ekki gerist það á hverjum degi að elítulið í knattspyrnunni eins og FC Barcelona fái á sig 8 mörk í leik en það gerðist í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í gær þegar Bayern München rassskellti Barcelona 8:2 í Lissabon. Thomas Müller skoraði tvívegis fyrir Bayern eins og Philippe Coutinho sem er í eigu Barcelona. Robert Lewandowski lét eitt mark duga að þessu sinni en einnig skoruðu þeir Ivan Perisic, Serge Gnabry og Joshua Kimmich. Luis Suarez skoraði fyrir Barcelona og hitt markið var sjálfsmark.