Madu Mmesoma Anthony er 11 ára strákur frá Nígeríu sem hefur ástríðu fyrir dansi. Myndband af honum að dansa ballett berfættur í rigningunni fór fyrr í sumar sem eldur um sinu á netinu og vakti athygli víða.

Madu Mmesoma Anthony er 11 ára strákur frá Nígeríu sem hefur ástríðu fyrir dansi. Myndband af honum að dansa ballett berfættur í rigningunni fór fyrr í sumar sem eldur um sinu á netinu og vakti athygli víða. Á myndbandinu má sjá Madu standa fyrir utan dansskólann sinn í Lagos og sýna pirouetta og arabesque í fallegu flæði við takt rigningarinnar. Fjöldi fólks deildi þessu og þar á meðal stórstjörnur og atvinnudansarar sem lofuðu þetta dásamlega fallega myndband en Madu hefur m.a. verið boðinn skólastyrkur hjá American Ballet Theater í New York.

Ljósa punktinn með DJ Dóru Júlíu má finna á K100.is.