Paul Gascoigne var snjall á velli.
Paul Gascoigne var snjall á velli. — AFP
Kvikmynd Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Paul Gascoigne segir í samtali við breska blaðið Daily Mail að til standi að gera leikna kvikmynd um ævi hans og feril. Kveðst hann fús að aðstoða við verkið sem byggjast mun á endurminningum hans.
Kvikmynd Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Paul Gascoigne segir í samtali við breska blaðið Daily Mail að til standi að gera leikna kvikmynd um ævi hans og feril. Kveðst hann fús að aðstoða við verkið sem byggjast mun á endurminningum hans. „Ég hef ekkert að fela. Þetta hefur allt verið í fjölmiðlum, bæði það góða og slæma,“ segir Gascoigne sem lifað hefur afar litríku lífi og lengi glímt við alkóhólisma. Ekki liggur fyrir hver mun leika kappann.